Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Síða 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Síða 15
Magni Kristjánsson, skipstjóri: Að austan Að hefja framþróun í lok des. s.l. setti Sjávarútvegs- ráðuneytið fram almenn stefnu- mörkunaratriði varðandi þorsk- veiðar á árinu 1980. Fátt nýtt er þar að finna, enda plaggið ekki ítarlegt. Þó er þar að finna nýmæli sem ég vil gera að umtalsefni. Þar segir: „stefnt skal að því að þessi afli (þ.e. þorskaflinn) skiptist jafnt milli báta og togara“, tilv. lýkur. Þetta atriði virðist í fljótu bragði lítt athugavert þegar höfð er í huga reynsla s.l. þriggja ára. Á þessu þriggja ára tímabili (1977—79) var hlutfallið togarar 50,4% en bátar 49,6%. En lítum nánar á. Á þessum þremur árum hefur togurum sífellt fjölgað en bátum fækkað. Á nýbyrjuðu ári er ljóst að a.m.k. þrír togarar munu bætast í flotann fyrir árslok og enn mun fækka bátum. Þetta líta menn vafalaust misjöfnum aug- um, en ástæða þess að ég geri þetta að umtalsefni er einföld. Ég álít að veiðiaðferðin og skipa- stærðir eigi í meginatriðum að sanna eða afsanna hæfni í inn- byrðis samkeppni. Ef ákvörðun verður tekin í samræmi við áðurnefnt stefnu- mörkunaratriði er verið að hamla gegn eðlilegri framþróun í fisk- veiðum. Á svipaðan hátt og ef t.d. landbúnaðarráðuneyti segði: „þessa hluta heyforðans skal aflað með vélum, afgangurinn skal tek- inn með orfi og ljá.“ Togari virðist einfaldlega hagkvæmara, örugg- ara og afkastameira veiðitæki en bátur miðað við mannafla og fjárfestingu og vinnur sífellt á. Þetta gerist þrátt fyrir margfaldar hömlur á veiðar togara umfram báta. Ég er fylgjandi heilbrigðri stjórnun fiskveiðanna, en ekki má standa þannig að stjórnun að hamlað sé gegn eðlilegri þróun og tækninýjungum. Kerfið Á tveggja ára fresti hittast í Reykjavík fulltrúar hinna ýmsu félaga innan F.F.S.Í. og það kall- ast þing Farmanna- og fiski- mannasambands íslands. Þar eru rædd ýmis réttinda- og hags- munamál sjómanna og gerðar um þau samþykktir. Síðan reynir stjórn F.F.S.Í. að fylgja þessum samþykktum eftir, á þeim vett- vangi sem hún telur helst árangurs að vænta af. Fylgjum eftir einu slíku máli: Síðasta þing F.F.S.Í. samþykkti m.a. að beina þeim tilmælum til Samgönguráðuneytis og Veður- stofu Islands að veðurspár á ensku máli verði sendar út frá 2—3 strandstöðvum tvisvar á sólar- hring, og stormaaðvaranir eftir þörfum (þingskjal 29). Að loknu þingi fóru fulltrúar úr stjórn F.F.S.Í. á fund samgönguráðherra m.a. til að vekja athygli á þessu máli: íslenskir sjómenn verða þessarar þjónustu aðnjótandi hjá öðrum þjóðum. Auk þess er ísland aðili að alþjóðasamvinnu sem Gestabókin VÍKINGUR 15

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.