Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Qupperneq 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Qupperneq 23
Benedikt H. Alfonsson: Sjálfvirkni í skipum Afleiðing sjálfvirkni í skipum á skipulagi, þjálfun og hönnun er fyrirsögn á ritgerð er birtist í tímaritinu Navigation 4. tölublaði 25. árgangi. Tímaritið Navigation er gefið út af samtökum er nefnast The Institute of Navigation og eru samtök áhugamanna um sigl- ingafræði. Að þessum samtökum standa allar helstu stofnanir og fyrirtæki í Bandaríkjunum á sviði siglinga, bæði á sjó og í lofti. Ritgerðin er samin af Captain C.W. Koburger, Jr., en hann flutti Fæddur 25. 8. 1928 á Garð- staðagrundum, ögurhreppi, Norður-ísafjarðarsýslu. Nám: Fiskimanna-, farmanna- og skipstjórapróf á varðskip- um ríkisins. Störf: Stýrimaður á togurum, flutningaskipum og varðskip- um. Frá 1960 kennari við Stýrimannaskólann i Reykja- vík. Aðalkennslugrein: Sigl- ingafræði. hana á fundi í áðurnefndum sam- tökum 31. okt. 1978. Ritgerð Koburgers fer hér á eftir endursögð og stytt. „Þessi ritgerð er tilraun til að skyggnast inn í framtíð siglinga í heiminum, afleiðingu sjálfvirkni í skipum. Sumt af því sem tekið verður til meðferðar virðist við fyrstu sýn fjarstæðukennt, en er þegar grannt er skoðað í sjónmáli. Ritgerð þessari er einnig öðrum þræði ætlað að hvetja atvinnuveg okkar til að hraða hinni fyrirsjá- anlegu og óhjákvæmilegu þróun. Á viðbrögðum okkar veltur ekki aðeins hagnaður útgerðarinnar eða laun skipshafnar, heldur ekki síður tilvera okkar sem sjómanna. Á ýmsu eru breytingar þegar hafnar, en þörf er á meiru. Siglingafræði Siglingafræði er aðalsmerki sjómanna. Eftir hæga þróun í mörg ár hefur þessi heiðvirða list (vísindi) tekið svo gagngerðum breytingum, bæði í tækjum og tækni, að líkja má við byltingu. Siglingafræðingurinn hefur nú við höndina miklu meiri upplýsingar en áður, þær berast honum hraðar og hann gerir meiri kröfur til nákvæmni þeirra. Til viðbótar kompás, vegmæli, sjóúri og sextant kom fyrst radíó- miðari og dýptarmælir, þá radar og ýmiss konar hyperbólu-radíó- siglingakerfi og nú GPS (gervi- hnatta-siglingakerfi). Nú á tímum á siglingafræðingurinn reyndar á hættu að verða kaffærður í þessu upplýsingaflóði. Til allrar hamingju leysti ný tækni (digital processing techn- iques og advanced display technology) vanda siglingafræð- ingsins. Þótt ekkert geti komið í staðinn fyrir mannlega dóm- greind, auðveldar hin nýja tækni siglingafræðingnum að taka ákvarðanir og tryggir rétt við- brögð, þar sem hún gerir allar þær upplýsingar sem tiltækar eru að- gengilegar mjög. Skipin I verslunarflota framtíðarinnar verður sennilega meira af stórum skipum. Öll skip hafa þá mikla sjálfvirkni, í brú, vélarúmi og á dekki. Þau verða þess vegna margbrotin mjög, með flókinn vélabúnað og verða þar af leið- andi mjög dýr. Öll stjórnun verður á einni hendi í einni stjórnstöð, brúnni. Siglingu skipsins verður stjórnað þaðan sem hingað til. Eftirlit og stjórnun véla fer fram þaðan, einnig eftirlit með farmi og stjórnun á losun og lestun og annarri starfsemi um borð. Olía verður áfram helsta eldsneytið, en verður miklu dýrari en nú. Það hefur í för með sér að nauðsynlegt verður að gera ferðaáætlanir, til að fá sem mest út úr skipi og eldsneyti. Þyrlupallur verður á öllum stærri skipum. Stjórnpallur Fremur en nokkru sinni fyrr verður brúin miðpunktur allrar starfsemi um borð. Hún verður fullkomin mjög, tölvuvædd, raf- eindastýrð stjórnstöð. Tæki til að gera ferðaáætlanir, staðarákvarð- anir, álagsmælingar, til að forðast árekstur, til að vara við hættu, auk VÍKINGUR 23
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.