Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Qupperneq 25
Myndin sýnir tækjasamstæðu eins og ætla má að verði í skipum framtíðarinnar. Tækin
eru frá vinstri: Doppler sonar (vegmælir), gýrókompás (á gólfinu), stjórnborð tölvu,
loran-C track plotter, loran-C móttakari, tvö segulbandstæki, móttakari fyrir merki frá
gerfihnöttum og loftnet. Einnig eru í tækjasamstæðunni nokkrar einingar tilheyrandi
tölvunni m.a. myndlampatækið er situr ofan á einum skápnum og er til aflcstrar.
sjálfstýringar, verða sambyggð í
einni aðaleiningu ásamt stjórn-
tækjum vélar, sambandi innan
skips og utan og aðalrafmagns-
töflu skipsins. Stefna og hraði,
stýris- og vélarfyrirskipanir og
álíka atburðir verða skráðir af
sjálfvirku tæki.
Stjórnpallar verða að verulegu
leyti staðlaðir, bæði vegna hag-
ræðingar, sem er árangur athug-
ana á vinnu í brú, og til að auð-
velda nýjum mönnum störf í
brúnni.
Skipaútgerð
I framtíðinni munu skipafélög-
in vafalaust fylgjast nánar með
ferðum skipanna. Meira verður
um skip í föstum ferðum en laus-
um. Þessum dýru og margbrotnu
skipum verður að halda í stöðugri
drift. Því að tíminn verður mjög
dýrmætur. Fjarskiptasamband
um gervihnetti (MARISAT), sem
nú þegar er fyrir hendi, gerir að-
alskrifstofunni kleift að hafa beint
samband við skipin hvar svo sem
þau eru stödd í heiminum. Búast
má við daglegu sambandi. Sigling
með tilliti til veðurs verður algeng.
Áhöfn
f framtíðinni munu áhafnir
verða miklu fámennari en nú.
Konum mun fjölga í öllum störf-
um um borð. Mest öll erfiðisvinna
hverfur. Vakthafandi yfirmaður í
brú verður að vera stýrimaður,
vélstjóri og tölvufræðingur. Aðrir
í áhöfninni hafa menntun á
þrengra sviði, svo sem rafvirkjar,
vélamenn, rafeindatæknar o.fl.
Það verður lítið pláss fyrir ólærða
á skipum framtíðarinnar.
Það fer í vöxt að yfirmenn verði
háskólamenntaðir. Hið fjölþætta
starf yfirmanns í brú veldur því að
hin stirðu samskipti, sem verið
hafa milli dekks og vélarrúms í
hundruð ár, verða úr sögunni.
Stöðugt verður erfiðara að
VÍKINGUR
vinna sig upp í brú af dekkinu, en
þó verður að halda þeim mögu-
leika opnum. í því skyni standa til
boða námskeið til endur- og
framhaldsmenntunar.
Viðstaða í höfnum verður ekki
lengur neinn hvíldartími, ef hann
er það þá nú, heldur verður þetta
tími mikilla anna og hamslauss
flýtis. Matur verður allur forsoð-
inn og pakkaður í smáar einingar
og síðan hitar hver sinn skammt.
Tíminn á sjónum verður það
ströng vanabundin vinna að af-
leysingar verða tíðar. Ef til vill
verða menn ekki nema tíu daga
samfellt um borð, verða þá leystir
af. Fara í land, en leysa svo af á
öðru skipi, sem er á leið til
heimahafnar.
Rafeindatæki og tölvur
Rafeindatækni verður allsráð-
andi í skipum framtíðarinnar. í
þeim öllum verða tölvur, ólíkar að
gerð og allir um borð verða að
geta notað þær. Þar verður tölva í
hverju horni.
Tækin verða þannig úr garði
gerð að lesa megi af þeim öllum á
einum stað í brúnni.
Sem stendur er mikilvægt að
þau sjálfvirku stjórnkerfi, sem við
höfum nú, verði gerð áreiðanlegri
en þau eru. Bilanatíðni er allt of
mikil og viðgerðatími er of langur.
Sjómenn hvorki trúa þeim né
treysta á þau. Auknar kröfur
verða gerðar til að tækin falli inn í
staðlaða skápa.
Viðhald, viðgerðir og birgðir
Fyrirbyggjandi viðhald fer
fram eftir ákveðnum föstum regl-
um. Minniháttar viðhald fer fram
um borð, en meiri háttar viðhald í
landi þegar skipið lestar eða losar.
Sérhæft fólk úr landi mun annast
þetta viðhald.
Birgða- og viðgerðamiðstöðvar
verða skipulagðar á heppilegum
stöðum, svo sem í Panama,
25