Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Blaðsíða 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Blaðsíða 26
Gibraltar, Höfðaborg og Singa- pore. Bili tæki um borð er bilunin fundin, skipt um biluðu eininguna og hún annaðhvort sett í land til viðgerðar eða henni hreinlega fleygt. Viðbótabirgðir svo og varahlutir og jafnvel viðgerðar- menn verða, ef á þarf að halda, fluttir um borð með þyrlu. Skipið tefst lítið ef þá nokkuð. Nokkur atriði til staðfestingar Losunar og lestunartími tank- skipa hefur alltaf verið að styttast og er nú aðeins fáeinar klukku- stundir. Tor Line Norðursjávar- ferjurnar hafa engar þernur. Far- þegarými er hreinsað af fólki úr landi að lokinni hverri ferð. Málmgrýtisflutningaskip US Steel er sigla á Vötnunum miklu fá varahluti og birgðir um borð, þegar þau sigla framhjá Soo Locks. En framhjá þeim stað þurfa öll skipin að sigla hvert sem ferðinni er heitið. Suður Afríka veitir í vaxandi mæli sömu þjón- ustu tankskipum er framhjá sigla. Rússneski sjóherinn virðist nú þegar hafa tekið upp viðhalds-, birgða- og varahlutaþjónustu líka því, sem hér hefur verið minnst á. Fleiri og fleiri rafeindatækja- framleiðendur eru að setja upp viðgerða- og varahlutamiðstöðvar á heppilegum stöðum. MARISAT er staðreynd og svona mætti lengi telja“. Niðurstöður Koburger eru á þessa leið. „Fulívíst er að sjálf- virkni verður allsráðandi í versl- unarflota Vesturlanda. Það er ekki lengur spurning um „hvort“, heldur „hvenær“ og „hvernig“. Afleiðingar þess eru vissulega ekki allir ennþá komnar í ljós, en nokkurn undirbúning ættum við að hefja þegar til að mæta þeim. Maðurinn fer með stórt hlutverk í sjálfvirkninni og verður því að gera ráð fyrir löngum undirbún- ingstíma. Hugmyndir breytast hægt, sérstaklega til sjós“. Sjálfvirkni og hagræðing á ís- lenska verslunarflotanum Víst er að sú þróun, sem lýst er hér að framan verður ekki umflú- in. Greinarhöfundur hvetur til þess, að henni verði flýtt, telur mikið við liggja. Sú sjálfvirkni sem við þekkjum á íslenska verslunarflotanum er eingöngu bundin við vélarrúm, ef undan er skilin sjálfstýring. Það virðist þó hafa verið mjög hæg þróun í sjálfvirkni í vélarrúmi hér hjá okkur. I öllu falli eru þau fá vélarrúmin, ef nokkur, sem eru mannlaus utan dagvinnutíma. Einhver hagræðing hefur þó átt sér stað, en hefur þó ekki haft í för með sér umtalsverða fækkun starfsliðs í vél. Og það á sjálfsagt langt í land að öll stjórnun véla færist upp í brú. Ætla má að vaxandi samkeppni við erlend skip leiði til aukinnar sjálfvirkni af þessu tagi. Dýr olía, sem ekki verður ódýr framar, leiðir sennilega til hins sama. Nú eru nokkur íslensk skip með svo fámennar áhafnir, að frekari fækkun kemur vart til greina nema aukin sjálfvirkni og hag- ræðing komi til. Sú hagræðing sem fyrir hendi er utan vélarrúms, er aðallega fólgin í því að auð- velda sjóbúning, losun og lestun. Síður hefur hún beinst að brúnni og þeirri vinnu er þar fer fram. Það er þó knýjandi nauðsyn ör- yggisins vegna. Stjórnandi í brú verður að hafa öll tæki og allar upplýsingar, sem hann þarf á að halda, innan seilingar. Lokaorð Ekki þarf að fjölyrða um nauð- syn þess, að þeir sem not eiga að hafa af sjálfvirkninni séu tilbúnir að taka við henni. Og á ég þá við sjálfvirkni eins og greinarhöfund- ur hugsar sér að hún verði. Norðmenn virðast þegar vera farnir að hefja undirbúning undir hið fjölþætta starf skipstjóra. Ný- lega voru tveir efstu bekkir stýri- mannaskólanna í Noregi færðir á háskólastig. Hér heima ættum við þegar að fara að huga að þessu máli, þótt gera verði ráð fyrir að þetta þró- unarstig verði seinna á ferðinni á íslenska verslunarflotanum en þeim norska. Stýrimaðurinn breytir stefnunni. Á skipuin framtíðarinnar verður stefnunni breytt með því að pikka nýju stefnuna inn á lyklaborð tölvu. 26 VÍKINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.