Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Page 29
hernaðaraðgerðir þeirra. í grein
eftir Hallgrím Matthíasson sem
hann reit um ýmislegt varðandi
Reykjavíkur radíó segir m.a. um
þetta:
„Þegar hernámsliðið, sem
hingað kom 10. maí 1940, sá að
TFA (auðkenni Reykjav. radíós)
var betur búin radiótækjum, bæði
til sendingar og viðtöku, en hlið-
stæðar loftskeytastöðvar í Bret-
landi, vildu þeir ekki líta við þeim
tækjum sem þeir höfðu meðferðis,
enda hefðu þau ekki komið að
verulegum notum hér á landi. Og
þær fjarskiptastöðvar sem þeir
komu sér upp hér voru eiginlega
ekki tilbúnar til viðskipta fyrr en
eftir dúk og disk. TFA varð þess
vegna einskonar radíómiðstöð
fyrir herskipaflota og skipalestir
bandamanna á Norður-Atlants-
hafi og við strendur íslands.
Bretarnir létu þá skoðun oft í
ljós við mig að margt hefði farið á
annan veg hefði TFA ekki notið
við og man ég alveg sérstaklega
eftir því þegar H.M.S. HOOD var
sökkt fyrir norðvestan ísland og
eltingaleikurinn um „BIS-
MARK“, best búna orustuskip
veraldar hófst. Þá var einum sjó-
liðsforingja Breta að orði að „TFA
hefði unnið orustuna um Atlants-
hafið“. En TFA vann líka oft aðr-
ar orustur upp á líf og dauða.
Á erfiðustu stríðsárum banda-
manna á hafinu, 1941—43, náði
TFA oft og stundum daglega
neyðarkalli frá sökkvandi skipum.
Þessi neyðarköll sendi svo TFA
áfram til annarra skipa og flug-
véla. Þannig átti TFA þá, eins og
svo oft fyrr og síðar, óbeinan þátt í
björgun óteljandi mannslífa“.
Að styrjöldinni lokinni komst
starfsemi loftskeytastöðvarinnar í
eðlilegt horf og reynt var að end-
urbæta og auka við tækjabúnað-
inn eftir efnum og ástæðum. En
hvorutveggja var að fjárútlát
ráðamanna voru takmörkuð og
ekki síður hitt að fyrst eftir styrj-
VlKINGUR
Loftskeytamenn að störfum á TFA. Aðalsteinn Guðjónsson (t.v.) og Gunnar Stein-
grímsson eru hcr að vinna við skipaþjónustu. Á daginn eru fjórir loftskeytamenn á vakt á
TFA, en þrír á næturnar.
í Reykjavíkur radíói er í skipaviðskiptum hlustað allan
sólarhringinn á eftirtöldum bylgjulengdum:
2182 (neyðarbylgja); hlustað með 3 viðtækjum
2311 (tilkynningaskyldan); 6 viðtæki
VHF (örbylgjuviðtaka); 6 —-
Stuttbylgja — tal; 5 —-
Stuttbylgja — morse; 3 —-
Langbylgja 500 morse (neyðarb.); 4 —-
Millitíðni — tal, afgreiðsla; 3 —-
Alls 30 viðtæki.
Þess má geta í sambandi við 2182, ef allt er með felldu, og
neyðarbylgjurnar, að fyrstu 15—18 mínútur og 45—48
þrjár mínútur í heila og hálfa mínútur yfir heila tímann á að
tímanum á að vera þögn á vera þögn á langbylgju 500.
Það er einn mjög slæmur
ljóður á ráði sjófarenda í
notkun talstöðva. Það er
skylda á stærri skipum að hafa
stöðugan hlustvörð á 2182.
Það eiga meira að segja að
vera sérstök viðtæki í stærri
skipum sem eru eingöngu
ætluð til þess. Vægast sagt er
það mjög erfitt að ná sam-
bandi við meirihlutann af
þeim skipum sem hafa þessa
skyldu. Við höfum orðið að
grípa til þess — þegar við
vissum af skipum í nánd við
bát sem var illa staddur — að
biðja útvarpið fyrir tilkynn-
ingu til þeirra í dægurlaga-
'tíma.
29