Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Page 30
Hádegisfréttir útvarpsins
eru sendar út á stuttbylgju, frá
klukkan 12,10 og fram yfir
veðurfréttir.
Fréttaskeyti, þ.e. útdráttur
úr fréttum dagsins sem út-
varpað tekur saman eftir að-
alfréttir á kvöldin, eru send út
á morsi klukkan 21,30 á
þremur stuttbylgjutíðnum.
Þessi þjónusta er ætluð ein-
göngu fyrir skip. Fréttaskeyti
þessi eru endurtekin klukkan
7,40 næsta morgun.
öldina var erfitt um útvegun
tækja, framboð takmarkað en eft-
irspurn mikil á heimsmarkaðin-
um.
Á árunum 1947—1950 er
skipafloti landsmanna endurnýj-
aður og aukinn verulega. Með
hinum nýju skipum kom ný og
fullkomnari radíótæki og skipum
og bátum búnum fjarskiptatækj-
um fjölgaði ört, m.a. við það að
öllum bátum 15 brl. og stærri var
gert að skyldu að hafa talstöð. Til
að mæta þessu var búnaður
strandarstöðvanna bættur og
aukinn og stöðvum fjölgað.
Þegar hinn nýi Gullfoss bættist
í skipaflotann, 1950, opnaðist ný
viðskiptaþörf, sem sé talviðskipti
á stuttbylgju. Þessu var mætt með
því að fela talsambandinu við út-
lönd að sjá um þau viðskipti og
voru notuð til þess fjarskiptatæki
sem talsambandið notaði við
Kaupmannahöfn og London, en
viðtakan var á fjarskiptastöðinni í
Gufunesi. Segja má að þetta hafi
verið angi af TFA, enda vísir að
auknum viðskiptum á þessu sviði.
Er hér var komið sögu urðu þær
raddir æ háværari sem heimtuðu
loftnetsmöstrin á Melunum fjar-
lægð, með tilliti til öryggis flug-
umferðar við Reykjavíkurflug-
völl. Sömuleiðis voru gerðar kröf-
ur til landrýmis umhverfis stöð-
ina, til bygginga m.a. Háskóla ís-
lands.
Með tilliti til þessa svo og
nauðsynjar þess að auka við og
bæta starfsaðstöðu stöðvarinnar,
var ákveðið að flytja Reykjavíkur
radíó að Gufunesi og samræma
hana starfsemi fjarskiptastöðvar-
innar þar að vissu marki. Þessi
flutningur átti sér stað á árinu
Gamla loftskeytastöðin, húsið á melunum þar sem Reykjavikur radíó hafði starfsemi sína
frá upphafi (1918) til 1963. Húsið er nú í eigu Háskóla íslands.
1963, eftir alllangan tæknilegan
undirbúning.
Auk þess sem talsambandið við
útlönd hafði annast afgreiðslu við
skip á stuttbylgju, höfðu um
nokkur undangengin ár farið fram
morseviðskipti á stuttbylgju við
skip á Gufunesstöðinni. Sömu-
leiðis fréttasendingar og útsend-
ing veðurfregna á morse. Við
flutning Reykjavíkur radíós að
Gufunesi var nú öll þessi þjónusta
við skip sameinuð á einum stað.
Þetta ár, 1963 varð fjöldi af-
greiddra skeyta um stöðina 15.783
og samtala 22.105. Fjöldi starfs-
manna var þá orðinn 8. En þó ber
þess að geta að allir sendar stöðv-
arinnar voru nú staðsettir á
Rjúpnahæð og um gæslu þeirra og
þjónustu annaðist starfslið þeirrar
stöðvar.
Við flutning loftskeytastöðvar-
innar að Gufunesi batnar öll
tæknileg aðstaða. Tækjum fjölgar
og möguleikar skapast til fjöl-
breytilegri þjónustu.
Viðtæki eru staðsett á ýmsum
stöðum, fjarstýrð frá stöðinni, til
að auka öryggishlustvörslu og til
að auðvelda viðskipti við fjar-
staddari skip. Því miður hefir
fjárhagur símastofnunarinnar
jafnan verið mjög knappur og í
svo mörg horn að líta að erfiðlegar
Veðurfréttir eru sendar út
fjórum sinnum á sólarhring á
morsi (á íslensku og ensku) og
einu sinni á tali (íslensku).
Raddir hafa heyrst um að
veðurfregnir þurfi að senda út
oftar og á fleiri tungumálum.
Um þetta hefur stjórnskipuð
nefnd nýlega fjallað, og mun
hafa lagt til að teknar yrðu
upp útsendingar á ensku tali.
Af því mun þó ekki verða að
sinni.
30
VÍKINGUR