Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Qupperneq 35

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Qupperneq 35
hátt getur mikil einbeitni við störf meðan á ferð stendur, eins og til að mynda, stjórnun siglingatækja í skipum og flugvélum, hindrað framkomu einkenna. Alkunna er, að léleg loftræsting, vond lykt og umfram allt sígarettureykur, kalli fram einkenni. Talið er, að konur séu almennt nærnari fyrir ferðasýki en karl- menn. Algengt er, að ferðasjúkt fólk verði fyrir áreitni jafnvel til athlægis meðal ferðafélaga sinna, og skammast sín margir af þeim sökum fyrir að þjást af þessum sjúkdómi og vilja ógjarnan hafa slíkt í hámælum. Varðandi meðferð á ferðasýki er það að segja, að sú hin fyrir- byggjandi gefur mun betri raun en ef meðferð er hafin þá fyrst, þegar einkenna hefur orðið vart. Við vitum vel, að sjómenn sem þjáðst hafa af sjóveiki sjóast, eins og kallað er, og verða smám sam- an ónæmir fyrir henni. Þó er slíkt, eins og áður getur, ekki án und- antekninga. Ónæmi það, sem þá hefur myndast, er harla einkenni- VÍKINGUR legt að því leyti, að það er tengt iðulega hreyfingum þess skips, sem sjúklingur hefur starfað á í það og það skiptið. Þannig er engin trygging fyrir því, að sjó- maður, sem sjóast hefur við færa- veiðar á trillubáti, geti ekki orðið sjóveikur á stærri farkosti, t.a.m. flutningaskipi. Einnig er það þekkt fyrirbæri, að sjómenn, sem aldrei hafa kennt sér meins á sjó, geta hæglega orðið loftveikir, þegar ferðast er í flugvélum. Hin fyrirbyggjandi meðferð er í grófum dráttum tvíþætt; þ.e.a.s. í fyrsta lagi lyfjagjöf og í öðru lagi vissar hegðunarreglur. Þannig á farþegi, bæði í bíl, lest og í flugi að nota, eins og áður segir, hnakka- púða, sem styður höfuðið og ein- beita sér að því að hreyfa það sem minnst. Horfa skal fram á við, eins langt og augað eygir, en ekki gjóa þeim til hliðar. Sé um sjóferð að ræða er tryggast að leggja sig, en vilji maður njóta útsýnis og dvelj- ast ofanþilja, þá gjarnan að beina sjónum að fjarlægum hlutum, eins og landi, stjörnum eða sjón- deildarhring. Hinn hluti með- ferðarinnar er, eins og áður segir, lyfjagjöf og er þá margs að gæta, t.a.m., hvaða verkefnum á að sinna meðan á ferð stendur og hvaða áhrif meðferðin hefur á framkvæmd þeirra. Mörg lyfja þessara hafa ýmis aukaáhrif, m.a. sjóntruflanir, þreytu, eyrnasuðu og jafnvel svima. Varhugavert getur því reynst að gefa aðilum, sem við stjórnun farartækisins fást slík lyf meðan á ferð stendur. Það er og þekkt fyrirbæri, að grípa þarf til sterkari lyfja svo ár- angurs megi vænta við sjóveiki en t.a.m. við loftveiki. Einnig ber að hafa í huga lengd væntanlegrar ferðar, áður en lyf eru gefin. Áhrif lyfja eru mis- munandi löng og verður af þeim sökum lyfjagjöf að endurtakast með jöfnu millibili, sem ákvarðast af tímalengd þeirri, sem verkun hvers lyfs hefur. Ef viðkomandi lyf hindrar uppköst, liggur hendi næst að gefa sjúklingi áframhald- andi meðferð í töfluformi. Að öðrum kosti verður að notast við 35
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.