Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Side 39

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Side 39
nógu heitt núna? sagði hún svo að lokum. Jú, jú sagði ég og þóttist nú fær í flestan sjó og fór ofan af loftinu. Pabbi og Hinrik voru tilbúnir í eldhúsinu. Hinrik var það betur settur en ég að hann átti nýlega skinnsokka og ekki var eins hætt við að hann vöknaði í fæturna. Við héldum svo til sjávar.’Pabbi lét negluna í bátinn, það gerði hann alltaf sjálfur. Hún var úr tjörutóverki fast saman snúnu. Svo tók hann stein úr fjörunni, barði dálítið á negluna með hon- um og lét svo steininn liggja á neglunni. Bátnum, sem hét Sturla og var 4ra manna far, hef ég áður sagt frá í frásögninni Þegar við fluttum kolin til prestsins sem birtist í Ársriti Sögufélags ísfirð- inga 1973. Ég lagði tvö hvalbein fyrir hann svo hann rynni léttilega fram fjöruna, svo ýttum við hon- um á flot og pabbi sagði okkur að reisa mastrið. Það var norðaustan vindur ofan af ströndinni svo við mundum fá gott leiði út fjörðinn. Pabbi lét stýrið fyrir, stakk stýris- sveifinni í það, og um leið og hann settist á stýrisþóftuna dró hann skautlínu seglsins undir röng, miðja vegu milli aftari miðtóftu og stýrisþóftunnar, og sagði Hinrik að tylla vindbandinu undir röng en efri endi þess var fastur við gaffalinn u.þ.b. miðja vega. Var það ætlað til þess að draga úr poka seglsins ef mikill vindur var og dró þá úr skriði bátsins um leið. Bát- urinn tók strax við sér er seglið var komið upp og skreið drjúgum. Pabbi sagði Hinrik að passa vind- bandið og taka í það ef hann segði honum. „Hjölli getur passað aust- urinn“. Stefnan var tekin fyrir Flateyrarodda. Fljótlega kom dá- lítill austur í bátinn. Hann var orðinn nokkuð gamall og hafði ekki fengið það viðhald sem nauðsynlegt var, því hann var mikið notaður og oft siglt óvægi- lega, og fyrir nokkrum dögum hafði pabbi fengið mömmu til þess að sauma smáfokku svo hann gæti siglt nær vindi, eins og hann kallaði það, og var hann búinn að reyna það og sagði að það hefði gefist vel. Fokkan lá nú saman- kuðluð frammi í stafnloki, en lín- unni sem henni tilheyrði, ef notuð var, var lauslega brugðið yfir mastrið. Við vorum nú að beygja fyrir Flateyrarodda og dró þá heldur úr hraða bátsins, því oddinn dró heldur úr vindinum. Þá segir faðir minn allt í einu:„Hjölli, haltu snöggvast í stýrið fyrir mig“. Ég Teikning: Katrin Briem 39 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.