Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Side 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Side 42
Séð yfir í Valþjófdal frá Flateyri, Þorfinnur innan við dalinn. stöðu. Þetta voru yfirleitt aflangir steinar sem tvöföldu bandi hafði verið brugðið utan um og var lykkjan nokkuð löng. Hann brá svo endanum á niðurstöðunni í lykkjuna við steininn en það var líka smálykkja á endanum á nið- urstöðunni og þar batt hann lóð- arhálsinn í. Hann sagði mér síðan að taka við niðurstöðunni, láta hana renna þar til ég fyndi að steinninn væri kominn í botn. Lét hann síðan lóðina liggja yfir vinstri handlegg sinn, en með þeirri hægri lyfti hann henni upp og fleygði hverri bugt út fyrir borðstokkinn og þó skriðurinn væri ekki mikill þá teygðist á lóð- inni, og hún smá sökk. Hann var nú bráðum búinn að leggja fyrstu lóðina og sagði mér að ná í þá næstu sem ég gerði. Dálítið breiða fjöl hafði hann sem lá af aftari miðtóftunni út á borðstokkinn. Átti ég að leggja lóðina á fjölina, leysa utan af henni og ýta henni svo eftir fjölinni til hans og vitan- lega að passa að lóðin færi ekki úr skorðum svo hún flóknaði ekki. Og hann var fijótur að hnýta lóð- arhálsana saman og önnur lóðin var farin að renna út. Pabbi kall- aði til Hinriks hvort hann gæti ekki róið dálítið meira og Hinrik reyndi sem hann gat. Og pabbi bar fljótara hendurnar eftir því sem skriðurinn jókst og önnur lóðin var brátt á enda og nú var kominn dálítill austur í bátinn og þegar ég fór að ná í þriðju lóðina steig ég í austurinn og fann þá hvað ég blotnaði í fæturna, því auðvitað höfðu roðbæturnar, er Mig hálfsvimaði... máttinn var farið að draga úr mér mamma var að reyna að leggja fyrir stærstu götin á skinnsokkun- um um morguninn þegar hún var að kveðja mig, ekkert dugað þegar 42 þær blotnuðu. En ég reyndi að láta ekki á neinu bera og ég fann að mér var farið að kólna og mig hálfsvimaði. Og ég fór að hugsa um sjóveikina. Þegar við vorum búnir að leggja sex lóðir lét pabbi minn mig ná í niðurstöðu og lóðarstein sem lá frammi í barka bátsins og lítið dufl. Ég kláraði að koma þessu til hans en nú fann ég að máttinn var farið að draga úr mér. Ég klöngr- aðist samt að lóðakörfunni og náði í lóð og allar komust þær tólf í sjóinn. Pabbi hefur víst séð að ég var eitthvað slappur. Er þér að verða eitthvað illt Hjölli minn? sagði hann allt í einu. Þér batnar það þegar við förum að draga og þú sérð spriklandi fisk- inn. Leggðu þig aftur í skutinn á meðan við Hinni róum á milli duflanna. Hann tók svo aðra árina af Hinrik og sagði honum að þeir skyldu róa að grunnduflinu. Hann ætlaði ekki að gefa langa legu núna. Þeir voru tiltölulega fljótir að komast að grunnduflinu þó vindinn hefði nú heldur hvesst. Og pabbi fékk Hinrik árina aftur, náði í duflið og byrjaði að draga. Heldurðu að þú klárir þig ekki á því að blóðga Hjölli minn, sagði pabbi, ef við fáum einhvern bíra? Ég skal reyna, sagði ég svo lágt að hann hefur víst ekki heyrt það. Pabbi fór nú að draga af kappi og fljótlega voru komnir fjórir fallegir fiskar inn í bátinn. Ég sat á stýrisþóftunni með hníf í hendinni og reyndi að blóðga þá, en mátt- urinn var alveg að yfirgefa mig og allt í einu missti ég hnífinn úr hendinni. Mér fannst ég allur vera að kólna upp, lagðist endilangur á þóftuna og upp úr mér kom stór gusa af hreinu blóði. Þetta gat ... lagðist endilangur — og upp úr mér kom stór gusa af hreinu blóði ekki verið venjuleg sjóveiki, því þá var ég vanur að kúgast meðan eitthvað var í maganum, en nú kom þetta alveg fyrirhafnarlaust og hreint blóð. Pabbi, sem var að draga, horfði á mig um stund, beygði sig svo niður eftir hníf sem stunginn var þar undir röng, skar lóðina í sundur, þreif duflið sem þeir voru nýbúnir að taka inn og batt það í lóðina og kastaði því svo frá bátnum. Síðan tók hann allar VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.