Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Blaðsíða 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Blaðsíða 46
Komdu sæll Gummi minn. Er eitthvað að hjá þér? Nei, sagði pabbi, það er ekki neitt að mér sjálfum en strákurinn fékk blóðspýju út í fjarðarkjaftin- um og ég er dauðhræddur um að ég komi honum ekki heim lifandi. Heldur þú að það sé svo slæmt? sagði læknirinn. Við skulum nú sjá til, bætti hann svo við. Síðan sneri hann sér að mér: Hefur þér verið illt í maganum undanfarið? Ég fæ stundum nábít og mér hefur fundist ég hafa sárindi fyrir bringspölunum, og oft hef ég átt bágt með að beygja mig. Hvernig hafa hægðirnar verið? Þær hafa verið góðar, sagði ég. Enga niðurgöngu haft? Það held ég ekki, sagði ég. Var þetta þá bara ekki sjóveiki? Ég er vanur að kúgast mikið þegar ég fæ sjóveiki en núna rann þetta blóð upp úr mér án þess að ég kúgaðist neitt og ég varð strax svo máttlaus og kaldur. Já, það má sjá það á þér greyið að þú hefur misst nokkuð mikið blóð. Síðan vatt hann sér að hurð sem lá inn í aðra stofu og opnaði hana til hálfs og sagði nokkur orð við konu sem stóð innantil við dyrnar. Eftir andartaks stund kom hún með dálítið glas og rétti honum. Síðan kom hann með það til mín og sagði mér að drekka það sem í því væri og gerði ég það. Fannst mér það gera mér gott. Mér hitn- aði og var eins og það færðist meira líf í mig allan. Læknirinn sneri sér síðan að pabba um leið og hann sagði: Það er enginn vafi á því að þetta er blæðandi magasár. Strákurinn verður að liggja í rúminu í að minnsta kosti þrjár vikur til að byrja með og lifa á léttum mat. Hann má ekki éta kjöt, ekki rúg- brauð, ekki drekka kaffi en mjólk má hann drekka. Þó er nú rétt að blanda hana með vatni fyrst í stað. 46 Ef þið eigið fjallagrös þá má gefa honum fjallagrasaseyði og mjólk- urgrauta vel soðna og yfirleitt vel Það má gefa honum fjalla- grasaseyði og mjólkur- grauta vel soðna meltanlegan mat og hann á að liggja og má ekki stíga í fæturna fyrst um sinn og ekki neitt reyna á sig. Kyrrðin og rétt mataræði ætti að laga þetta nokkuð fljótlega. Þú talar nú við mig seinna og segir mér hvernig gengur. Má hann þá ekki borða nýjan fisk? spurði pabbi. Nei, ekki núna fyrstu dagana. Mamma hans getur reynt að gefa honum vel soðinn smáfisk eftir að hann fer að hressast. En lítið í einu. Og biddu hana að taka eftir hvort nokkurt blóð kemur niður af honum þegar hann hefur hægðir. Já, ég skal segja henni það, sagði pabbi. Hann spurði svo lækninn hvað hann ætti að borga en læknirinn opnaði bara hurðina og bað okkur að vera blessaða. Hann frétti af okkur seinna hvernig gengi. Við fórum svo út og fram á bryggju aftur til að komast heim. Hinrik hafði beðið á bryggjunni meðan við fórum heim til læknisins og nú fór hann niður í tröppuna og beið eftir að ég kæmi niður í hana en pabbi hélt í hönd mína og ég komst niður í bátinn og settist á miðþóftuna, því nú fannst mér óþarfi að leggjast niður þessa stuttu leið sem eftir var inn í lendinguna á Görðum. Pabbi sagði Hinrik að setja upp seglið, hann nennti ekki að róa þetta, og gerði Hinrik það. Báturinn tók strax við sér þegar hann fékk vindinn í seglið. Hinrik kallaði til pabba hvort hann ætti að setja upp fokkuna. Pabbi sagði að það væri óþarfi. Þetta væri stutt eftir og eftir fáeinar mínútur rann Sturla upp í lendinguna á Görð- um og mín söguríkasta og örlaga- ríkasta sjóferð var á enda. Ég lá svo í rúminu um þriggja vikna skeið og fyrir nærgætni og umhyggju móður minnar mun þetta sár hafa gróið tiltölulega fljótt, en út frá því fóru að mynd- ast erfiðar magabólgur sem ollu mér sífelldum sviða fyrir brjósti, nábít og ýmissi vanlíðan með erf- iðri vinnu sem ég hafði oft. VÍKINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.