Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Síða 47
Það er gaman á sjó
ef vel veiðist
Það er mikil samvinna milli „kallanna“, að lesa upp lórantölur og er því oft farið í
blcyðubókina. Hér er Kristján Halldórsson, skipstjóri.
Það þarf oft að taka „kríulöpp" þegar
togað er á ósléttum botni. Myndin sýnir
Ágúst „Gústa“ Vilhelmsson.
Það er gaman á sjó — þegar vel veiðist,
og nóg að gera i aðgerðinni,
og i lestinni.
Það fylgir því óneitanlega dálítil
eftirvænting að vera að fara á sjó
eftir margra ára hlé, eins og ég
en ég fór einn afleysingartúr sem
loftskeytamaður á togaranum
Svalbak frá Akureyri í júlí síðast-
liðnum. Það er skrítið hvernig
maður verður alltaf var við sama
andrúmsloftið um borð fyrstu
dagana í túrnum, og ég varð ekki
síst var við núna, þegar tekið er
tillit til þess að ég var í mínu sum-
VÍKINGUR
arleyfi, en aðrir áhafnarmeðlimir
að vinna fyrir sínu lifibrauði.
Þetta andrúmsloft er blandað
söknuði til fjölskyldu og ástvina,
vitandi það, að þú munt ekki sjá
þau næsta hálfa mánuðinn, og
stundum svartsýni, sem kemur
fram þegar illa veiðist, og verður
hún því dekkri sem fleiri reiðu-
leysisdagar líða.
En því var ekki fyrir að fara í
þessum eina túr mínum í þetta
sinn, því að strax fyrstu dagana
var góð veiði sem síðan hélst allan
túrinn, uns fullfermi af vænum
þorski var náð eftir þrettán daga í
sólskini og blíðu. Það ríkti því
glaðværð og bjartsýni allan túr-
inn, og vil ég þakka öllum skips-
félögum mínum ánægjulegan túr.
Það er gaman á sjó — ef vel
veiðist.
Valur R. Jóhannsson
47