Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Blaðsíða 56

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Blaðsíða 56
— Það er orðið of seint, Sam , segir Ginger góðlátlega. — Best fyrir þig að vera í næði síðustu mínúturnar, segir Peter, — og spara aurana þína. — Þið farið og sækið lækni, morðingjarnir ykkar, segir Sam stynjandi, í því Peter byrjaði að hátta hann. —Farið strax, annars geng ég aftur og ásæki ykkur. Ginger reyndi að sýna honum fram á, hversu syndsamlegt væri að sóa peningum í óþarfa, en það kom að engu gagni, og eftir að hafa sagt Peter, hvað hann ætti að gera, ef Sam dæi, meðan hann væri í burtu, fór hann. Hann kom hálftíma seinna ásamt ungum manni með ljóst hár, rauð augna- lok og svarta tösku. — Er ég að deyja, herra lækn- ir? segir Sam eftir að læknirinn hafði hlustað í honum lungun og hjártað og þuklað hann allan. — Við deyjum allir, segir læknirinn, sumir fyrr, aðrir síðar. — Lifir hann daginn af? segir Ginger. Læknirinn leit aftur á Sam, sem hélt niðri í sér andanum meðan hann beið eftir svarinu. — Já, segir læknirinn að lok- um, —ef hann gerir einsog ég segi honum og tekur inn meðalið, sem ég sendi honum. Hann stóð ekki við í svo mikið sem tuttugu mínútur, en þó varð Sam vesalingurinn að borga hon- um tuttugu krónur, en það, sem Sam sárnaði jafnvel ennþá meira, var að heyra hann ganga blístr- andi glaðlega niður stigann, eins- og ekki væri nokkur deyjandi maður í hundrað mílna fjarlægð. Peter og Ginger skiptust á um a sitja hjá Sam allan morguninn, en eftir hádegið kom móðir húsmóð- urinnar til að líta eftir honum um stund. Þetta var gömul kerling, næstum eins þrekvaxin og Sam sjálfur. Hún sat við rúmstokkinn og reyndi að skemmta honum með því að segja honum frá öllum þeim dánarbeðum, sem hún hefði setið við um dagana, einkum varð henni tíðrætt um einn mann, lif- andi eftirmynd Sams, sem hefði látist í svefni. Það var langt liðið á nótt, þegar Peter og Ginger komu heim, en þeir fundu Sam sitjandi uppi í rúminu, haldandi opnum augunum með fingrunum. Sam fékk aftur tuttugu króna virði af lækningu daginn eftir og meðalið varð enn bragðverra en áður. Hann virtist ofurlítið hress- ari, ef nokkuð var, en kerlingin sagði, að það væri ills viti, og fólk hresstist oft rétt áður en það skildi við. Hún spurði hann, hvort hann langaði til að verða grafinn á ein- hverjum sérstökum stað, talaði um, hversu margt fólk væri grafið lifandi, og sagðist ætla að biðja lækninn að skera höfuðið af Sam til að fyrirbyggja allan misskiln- ing. Hún móðgaðist herfilega við Sam, þegar hann lét í ljós grun um, að það kynni að vera mis- skilningur, og hann myndi rakna við, meðan hæst stæði á verkinu, hvernig myndi henni þá bregða við? Og þá sagði hún, að það væri ekki hægt að gera sumu fólki til hæfis, hversu sem reynt væri. Að sex dögum liðnum var Sam enn á lífi og tapaði tuttugu krón- um á dag, svo ekki sé minnst á, að hann varð sjálfur að kaupa ket- VÍKINGUR EnginvettEngatök Rauðu MAX VINYLglófamir eru öll véttlingatök. með grófri kmmpáferð. Um endinguna vitna þeir sem nota þá. Hún auðveldar erfið störf og útilokar MAXr Rauðu MAX VINYLglófamir. Heildsölubirgdir og dreifing Daviö S. Jónsson og Co. hf. S 24333. 56
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.