Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Síða 61

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Síða 61
— Hvernig get ég farið svona búinn? segir Sam viti sínu fjær. —Ertu snarvitlaus? — Jæja, hvað ætlarðu að gera? segir ökumaður. — Hvað mundir þú gera í mínum sporum? segir Sam ofur- lítið rólegri og reynir að vera kurteis. — Ég myndi fyrst og fremst gæta betur orða minna, þú ásak- aðir mig áðan, mig, strangheiðar- legan manninn, um að ætla að ræna þér. — Það var bara gamansemi, segir Sam snöggt. — Jæja, segir ökumaðurinn, —í þínum sporum myndi ég borga fimm krónur fyrir gistingu í þessu hlýja, góða hesthúsi, og í fyrrmálið mundi ég biðja eiganda þess — það er ég — að fara heim og sækja föt og fjörutíu krónur. — Fjörutíu krónur? segir Sam og glápir. — Tíu krónur fyrir tveggja tíma bið, tuttugu og fimm fyrir akstur hingað og fimm fyrir gist- ingu. Það er sanngjarnt, er ekki svo? segir ökumaður. Sam sagði að svo væri, þegar hann mátti mæla — og ökumað- urinn gaf honum hálm til að liggja á og ábreiðu ofan á sig. Og svo kallaði hann sjálfan sig fífl fyrir að vera svona góðhjartaður, fór burt og lokaði á eftir sér. Þetta var einsog martröð fyrir Sam, og hið eina, sem hann huggaði sig við, var það, að veik- indin virtust öldungis rokin út í veður og vind. Hann vaknaði klukkan sex um morguninn við það að ökumað- urinn kom inn. — Jæja, þá er að skrifa bréfið, sagði ökumaðurinn, nema þú viljir heldur ganga heim svona búinn. Sam skrifaði Ginger og bað hann að afhenda ökumanni föt ásamt fjörutíu krónum. — Og hafðu hraðan á, segir hann, —ég vonast eftir þér eftir hálftíma. — Þú færð þau, ef þú ert heppinn, þegar ég kem heim klukkan fjögur að skipta um hest, segir ökumaður. —Heldurðu ég hafi ekki annað að gera en snattast fyrir þig? Nú þurfti ökumaður að bregða sér frá, hann var í ágætu skapi, blístraði og veifaði til Sam. Á meðan hann var fjarverandi, labbaði Sam út í vagninn og settist á gólfið. Hann sat þannig og hélt niðri í sér andanum og þorði ekki að hreyfa sig fyrr en hann heyrði, að ökumaður var kominn í sæti sitt og lagður af stað, þá fékk hann sér þægilegra sæti en lét lítið á sér bera. Það var verið að opna búð- irnar, sólin skein glatt, og Sam leið svo vel, að hann var feginn, að hafa ekki lagst inn á spítala. Vagninn fór hægt, og loks stansaði hann, þegar gömul kona og maður komu og veifuðu til hans. Gamli maðurinn tók í hurðina og var að reyna að opna, þegar hann kom auga á Sam gegnum gluggann. — Nú, þér eruð með farþega, segir hann. — Nei, herra minn, segir öku- maður. — Nú, ég sé hann þó. Ökumaður klifraði niður úr sætinu og leit inn um gluggann og í meira en tvær mínútur kom hann ekki upp nokkru orði. Hann bara stóð og glápti á Sam og varð rauðari og rauðari í framan. — Áfram, lagsi, segir Sam. —Til hvers ertu að stansa hér? Ökumaður reyndi að segja honum það, en í sama bili kom lögregluþjónn aðvífandi til þess að gá, hvað um væri að vera, og ökumaður skreið upp í sætið og ók af stað. Ökumenn hafa álíka mik- ið dálæti á lögregluþjónum og kettir á hundum, og hann ók góð- an spöl áður en hann fór niður til að ljúka athugasemdum sínum um Sam. — Ekki þennan hávaða, öku- maður, segir Sam, — annars verð ég að kalla á lögregluna. — Ætlarðu út úr vagninum? segir ökumaður, —eða á ég að fleygja þér út? — Þú fleygir mér út, segir Sam, sem hafði bundið lökin að sér með snærum í hesthúsinu og hafði handleggina lausa. Ökumaður leit á hann ráðalaus og ók svo af stað. Hann stansaði ekki fyrr en í næstu götu við heimkynni þeirra félaga, kallaði til manns og bað hann að gæta Skoðun og viðgerðir gúmmíbáta allt árið. GÚMMÍBÁTAÞJÓNUSTAN Eyjagötu 9 Örfirisey Slmi 14010 VÍKINGUR 61

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.