Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Blaðsíða 65

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Blaðsíða 65
t HORFNIR FÉLAGAR t Hinn 19. desember fyrra árs andaðist Gunnar Valdimar Gíslason, fyrrum skipherra hjá Landhelgisgæslunni, rúmlega átt- ræður að aldri, en með honum er horfinn einn elsti og jafnframt eftirminnilegasti starfsmaður þeirrar þjónustu. Gunnar var fæddur að Fagur- hólsmýri í Öræfum, sonur hjón- anna Gísla Þorvarðarsonar bónda þar og konu hans Margrétar Gunnarsdóttur bónda á Flögu í Skaftártungu. Gunnar var þó jafnan kenndur við Papey, því þangað fluttist hann með foreldr- um sínum aldamótaárið og ólst þar upp til 18 ára aldurs, er hann hóf sjómannsferil sinn. Var hann fyrst á íslenskum fiskiskipum og sigldi allt til ársins 1926 á flestum tegundum þeirra svo og björgunarskipinu ÞÓR, er þá var gert út frá Vestmannaeyj- um, auk nokkurra norskra skipa. Jafnhliða stundaði hann nám við Stýrimannaskólann í Reykjavík og lauk þaðan farmannaprófi árið 1921. Þegar íslenska Landhelgisgæsl- an var formlega sett á stofn á miðju ári 1926 var hann skráður sem 3. stýrimaður á varðskipið ÞÓR, en frá þeim tíma og meðan heilsa og geta leyfði starfaði hann nær óslitið á vegum Landhelgis- gæslunnar eða útgerða nátengdra henni, svo sem vitamálaþjónust- unnar. Var hann þá ýmist stýri- maður eða skipherra varðbáta og varðskipa við hin margvíslegu störf þeirra, eins og almenn gæslu- og björgunarstörf, vitaflutninga, sjómælingar eða við hafnargerðir, —- hann sótti t.d. dýpkunarskipið GRETTI til Skotlands og var með það um hríð o.m.fl. Eftir áramótin 1955 fór Gunnar Gunnar y. Gíslason, — skipherra — Gunnar Gfslason lítið eða ekkert á sjó, en vann í landi fyrir Landhelgisgæsluna, eins og við eftirlit með ýmsum björgunartækjum, gúmmíbátunr, skotvopnum og eyðingu tundur- dufla. Sótti hann í því skyni sér- stök námskeið hjá danska flot- anum og var um árabil sérfræð- ingur Landhelgisgæslunnar í meðferð fallbyssa og sprengiefna og kennari yngri kynslóðar henn- ar í þeim efnum. Gunnar var í eðli sínu mjög laginn maður og hagsýnn, sem vann öll sín störf af stakri alúð og trúmennsku, og var honum því bæði fyrr og síðar falin fram- kvæmd ýmsra vandasamra verka, eins og bjarganir skipa eða eyðing hættulegra sjórekinna hluta og fleira, sem vinna varð við erfiðar aðstæður með fábreyttum tækjum og lítilli sem engri aðfenginni að- stoð. Við slík verk komu hinir sérstöku eiginleikar hans, — óvenju skýr hugsun, þrautseigja og æðruleysi mjög berlega í ljós. Allir gátu treyst Gunnari, bæði í orði og verki. A langri sjómanns- ævi hans gaf eðlilega oft á bátinn, — en verkefnum sínum, skipi og skipshöfn — skilaði hann ætíð heilu í höfn. Gunnar var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Guðrún Björns- dóttir, bónda á Dilksnesi við Hornafjörð, Jónssonar og konu hans Lovísu Eymundsdóttur. Þau skildu. Dóttir þeirra er Lovísa Hanna, gift Þórarni Jóhannssyni, stöðvarstjóra við endurvarpsstöð- ina á Hornafirði. Siðari kona Gunnars var Magnfríður Þor- leifsdóttir, vélstjóra á ísafirði, Þorsteinssonar og konu hans Þór- dísar Jónsdóttur. Magnfríður lést fyrir nokkrum mánuðum. Fundum okkar Gunnars bar fyrst saman er þáverandi varðskip OÐINN og ÞÓR unnu að björgun breska togarans MAX PEMBERTON árið 1927 út af Leirhöfn á Sléttu. Var ég þá við- vaningur á ÓÐNI, en Gunnar stýrimaður á ÞÓR og lenti ég ásamt fleiri skipverjum undir stjórn hans um borð í togarann, eftir að hann var kominn á flot. All-löngu síðar, — á styrjaldar- árunum síðari, endurnýjuðust þau kynni er við unnum saman að sjómælingum o.fl. um borð í gömlu SÆBJÖRGU, hann þá orðinn skipherra og ég nýorðinn stýrimaður, — en lengst unnum við þó saman eftir að ég varð for- stjóri Landhelgisgæslunnar, — og það fór fyrir mér sem fleirum, að VÍKINGUR 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.