Náttúrufræðingurinn - 1960, Blaðsíða 3
Náttúrufr. - 30. árgangur - 2. hefli - 53.—102. siða - Reykjavík, júni 1960
Jón Jónssott:
Jökulberg í nágrenni Reykjavíkur
Inngangur.
Jökulberg (tillit) er jökulruðningur, sem orðinn er að íöstu bergi.
Getur Jjað verið mjög ólíkt að útliti eins og jökulruðningurinn.
Fer það fyrst og fremst eftir því, hvaða bergtegundir, ein eða fleiri,
Jrað eru, sem lagt hafa til efnið í jökulbergið. Útlit bergsins fer
einnig mjög eftir því, hvaða kornastærð er mest áberandi, hvort
heldur leir, sandur, möl, smásteinar eða stórgrýti. Margt fleira
kemur til greina í þessu sambandi, og má sem dæmi nefna, að í
jökulbergi koma fyrir meira eða minna vatnsnúnir og hnöttóttir
steinar (apalgrýti) og eins steinar með hvössum brúnum. Stundum
sést í því lagskipting, en oftast er allt í einum hrærigraut.
Mjög erfitt getur verið að fá úr því skorið, hvorl um jökulberg
eða berg af öðrum uppruna sé að ræða, og stundum er þess enginn
kostur. Sé undirlag bergsins fágað og rispað og rnikið um rákaða
steina í berginu sjálfu, eru sterkar líkur fyrir jrví, að um jökulberg
sé að ræða, og eins, ef lagskiptan leir, hvarfleir eða þess háttar er
að finna innan um eða í sambandi við það. Þessi atriði eru hin
mikilvægustu, þegar um er að ræða sannanir fyrir uppruna bergs-
ins. Oft er, a. m. k. hér á landi, mikið um myndanir jökulvatna
innan unr og í sambandi við jökulurðir. Þar sem jökulberg er
þannig, getur oft verið álitamál, hvort tala beri um jökulberg eða
ekki. f jökulruðningi hér á landi er yfirleitt tiltöhdega lítið um
ísrákaða steina, en aftur á móti er oft mikið af núnu grjóti (apal-
grýti) í Jrví. Sérstaklega er Jretta áberandi við skriðjökla á Suðurlandi.
Reykjavik og nágrenni.
í nágrenni Reykjavíkur er jökulbei'g allvíða. Nágrenni Reykja-
víkur er í þessaii grein talið Jxað svæði, sem jarðfræðikort okkar
Tómasar Tryggvasonar nær ylir.