Náttúrufræðingurinn - 1960, Blaðsíða 13
NÁTTÚRUFRÆÐINGU RINN
<55
8. mynd. Jökulbergsklöpp vestan við Kliíberg Brimnesi. Part of the fossiliferous
tillite (T 3) W of Klifberg Brimnes. Ljósm.: Tón jónsson
Photo: J J
að lögin eru þarna undir grágrýti, sem urið er af jöklum síðustu
ísaldar.
Við Leirvogsá, nokkuð austan við Varmadal, sér í jökulbergs-
klöpp, sem áin fellur upp að (1955). í berginu eru ísrákaðir steinar.
Ofar í árgilinu, norðan og vestan við Mosfell, kemur fram völu-
berg (konglomerat) undir grágrýtinu. Ekki sést, hversu þykkt það
er, en ætla má, að það liggi ofan á áður nefndu jökulbergi. Um
aldur þessara laga er það að segja, að þau eru eldri en grágrýtið,
sem þarna er á yfirborðinu. Grágrýtishraunið, sem runnið hefur
niður dalinn milli Esju og Mosfells, virðist þar hafa runnið yfir
aura og sanda, sem myndazt hafa, er jöklar fyrri ísaldar gengu til
baka. Hraunið hefur verið mjög þunnfljótandi, og sést það af því,
að steinvölur úr aurunum, sem það rann yfir, eru nú fastlímdar í
neðraborð þess. Má sjá þetta vestan megin í árgilinu austantil,
gegnt Mosfelli (6. mynd).
I Viðey, rétt norðan við Virki, sjást sandsteinslög undir grágrýt-
inu milli þess og hins tertiera bergs. Þetta má einnig sjá vestan við