Náttúrufræðingurinn - 1963, Síða 9
NÁTT Ú R U FRÆÐI N G U R IN N
15!
9. G. commutala Hiib. er í B.I. talin fundin á tveim stöðum,
en hvorugur þeirra funda er á safninu hér, aftur á móti eru tveir
fundir þessarar tegundar varðveittir á safninu liér, en í báðum til-
vikurn skakkt greindir, en eru þó ekki báðir greindir til sömu
tegundar. Þessa tegund hef ég enn ekki fundið.
10. G. torquala Hornsch. er algeng á SV-landi, en sjaldgæfari
annars staðar.
11. G. funalis (Schwaegr.) Schimp. er allalgeng.
12. ? G. incurva Schwaegr. er í B.I. talin fundin á einum stað.
hérlendis og er sá fundur á Náttúrugripasafninu hér, en þar er
um ranga greiningu að ræða. Tegundin verður þó ekki felld niður
hér, því Meylan hefur síðan getið hennar héðan.
13. G. patens (Hedw.) Br. Eur. er mjög sjaldgæf.
14. G. pulvinata (Hedw.) Sm. (3. mynd) er ekki talin fullgild
íslenzk tegund í B.I., en um hana er þar sagt: „Grimmia pulvinata
is enumerated in several older lists, but these records are probably
due to a conl'usion with otlier species." Þessa tegund fann ég
1959 í Reykjavík.
3. mynd. Grimmia pulvinata.
4. mynd. Grimrnia plagiopodia.
15. G. plagiopodia Hedw. (4. mynd) hefur ekki verið getið héðan
lyrr. Þessa tegund hef ég fundið í Reykjavík, fyrst árið 1958.
16. Rhacomitrium heterostichum (Hedw.) Bird. er algeng teg-
und. Tegundin R. sudeticum í B.I. er hér talin sem afbrigði af
þessari tegund, og er það algengara en aðaltegundin.
17. R. elliplicum (Turn.) Br. Eur. hefur ekki fundizt hér áður,