Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1963, Síða 31

Náttúrufræðingurinn - 1963, Síða 31
NÁTT Ú R U F RÆÐINGURINN 171 suðvestur £rá Snæfellsnesi. Þetta djúp er annaðhvort eldra en Snæ- fellsnesið, sem vart kemur til greina, eða það er myndað með broti, sem og kæmi heim við stefnuna og miklar mishæðir í því. Svipað mætti segja um Kolluál. Loks komum við aftur að Selvogsgrunni eða almennt svæðinu frá Vestmannaeyjum að Reykjanesi. Með hliðsjón af því, sem sagt var um aldursafstöðu álanna fyrir norðan til grágrýtisins á Skaga og Sléttu má ætla, að grágrýti Suðvesturlands nái hér út á grunnið. Grágrýtið mun liggja um sunnanverðan Faxaflóa og út fyrir Garð- skaga. Á Reykjanesfjallgarði er þaklag af grágrýti. Þessi fjallgarður er til orðinn við lyftingu upp úr eldri sigdæld og í henni mynd- uðust grágrýtishraunin, sem þekja fjöllin (sbr. T. E. 1962). Við Geitahlíð er brotsár og grágrýtið fellur niður á láglendi á Krísu- víkursvæðinu. Þverskurður af þessum hraunum sést í Krísuvíkur- bjargi. Hér verður að reikna með framhaldi til suðurs og austurs og þá væntanlega í yfirborði spildu, sem lægi enn lægra. Á þennan hátt fást sterkar líkur fyrir því að grágrýtið nái langt út á grunnið, annaðhvort í yfirborði þess eða undir þunnu setlagi. Nú er á það að líta, að áður en ris fjallgarðsins varð, var á þessu svæði sigdæld og út í hana barst mikið efni. Hér hefur þá væntan- lega komið fram rnikið af afrennsli Suðurlandsundirlendisins og lega Grindavíkurdjúps kemur ágætlega heim við það, að það væri grafið á þessum tíma, en ella er rnjög erfitt að skýra jtað nema sem beina afleiðingu af broti. Þetta gæti jafnframt skýrt vöntun ála fram af Þjórsá og Olfusá. Út frá þessum hugleiðingum kernst rnaður á þá skoðun, að ál- arnir muni vera eldri en myndun Reykjanesfjallgarðsins, en yngri en grágrýtið. Þetta kernur heim við þær bendingar, sem fengust á Norðurlandi, að álarnir séu yngri en síðustu segulumskipti, en þau urðu á miðjum eða öndverðum jökultímanum. Grágrýtið rann á hlýviðrisskeiði rnilli ísalda, þegar lítið vatn var bundið í jöklum. Eigi að síður ætti það eftir áður sögðu að hafa breiðzt út yfir sléttu, sem nú liggur sem landgrunn á 100—200 m dýpi. í |)ví fælist, að binding sjávar í jöklum væri ekki skýring á dýptarlegu landgrunnsins, heldur yrði sig grunnsvæðisins eins og áður var að vikið óhjákvæmileg ályktun eða þá allsherjar ris sjávar af öðrum völdum en jöklabreytingum. Af því sem nú hefur verið sagt verður ljóst, að myndun núver-

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.