Náttúrufræðingurinn - 2007, Side 3
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Ritstjóraskipti
OG NÁTTÚRUMINJASAFN
Náttúrufræðingurinn á sér orðið langa
sögu. Tímaritið hefur komið út frá ár-
inu 1931, þegar dr. Ámi Friðriksson
fiskifræðingur og dr. Guðmundur G.
Bárðarson jarðfræðingur hófu útgáfu
þess. Tíu árum síðar keyph Hið ís-
lenska náttúrufræðifélag ritið og hefur
gefið það út síðan, í seinni tíð sem fé-
lagsrit sitt. Tímaritið gegnir nú sem
fyrr mikilvægu hlutverki, bæði sem
fagtímarit þar sem íslenskir náttúru-
fræðingar geta lagt rannsóknaniður-
stöður sínar fram á móðurmálinu og
sem vettvangur fyrir almennan fróð-
leik um náttúrufræði. Að sjálfsögðu
hefur Náttúrufræðingurinn breyst
mikið á rúmlega sjötíu ára ævi sinni
enda miklar breytingar orðið í þjóðfé-
laginu á þessum tíma. Síðasta stór-
breytingin varð árið 2002 er úthti tíma-
ritsins var breytt; m.a. var brot þess
stækkað til að koma til móts við breytt-
ar þarfir og nýja tækni hvað varðar
myndir og gröf. Það er ljóst að vel
heppnuð útgáfa tímarits er háð góðu
fólki sem tekur þátt í útgáfu þess og
hefur félagið verið svo lánsamt að hafa
stóran hóp fólks sem unnið hefur við
útgáfuna í gegnum árin, bæði ritstjórn-
armeðlimi og ritstjóra. Að baki hverju
hefti Náttúrufræðingsins liggur mikil
vinna margra aðila, allt frá höfund-
um, ritstjóm og yfirlesurum, hl rit-
stjóra sem ber hitann og þungann af
útgáfunni. Frá upphah hafa 17 ritstjór-
ar starfað við Náttúrufræðinginn og
með síðasta hefh í lok árs 2006 lét sá rit-
stjóri af störfum sem hefur starfað
einna lengst við útgáfuna. Álfheiður
Ingadóttir, líffræðingur og blaðamað-
ur, tók við Náttúrufræðingnum af
Sigmundi Einarssyni jarðfræðingi árið
1997 og stýrði útgáfunni í áratug. Nátt-
úrufræðingurinn dafnaði vel á þessu
tímabili og tók Álfheiður þátt í að
breyta útlih ritsins sem áður var nefnt.
Ég vil fyrir hönd stjómar Hins íslenska
náttúrufræðifélags þakka Álfheiði vel
unnin störf í þágu tímaritsins og
félagsins undanfarinn áratug. Eins vil
ég nota tækifærið og óska nýjum
ritstjóra, Hrefnu B. Ingólfsdóttur, vel-
famaðar í starh.
Það hefur oft reynst erfitt að halda úh
fjórum heftum Náttúrufræðingsins á
ári eins og til er ætlast og því hefur
útgáfan oft orðið fyrir seinkunum og
verið á eftir áætlun. Því miður er
tveggja ára seinkun nú og leggur stjóm
félagsins mikla áherslu á að reyna að
vinna hana upp. Við ritstjóraskiptin
ákvað stjórnin að setja af stað átaks-
verkefni sem felur í sér að Náttúru-
fræðingurinn komi hðar út á næstu
árum. En það er ekki nóg að aðstand-
endur tímaritsins séu allir af vilja gerð-
ir - við setjum traust okkar á höfunda
til að þetta megi takast. Ég vil því
hvetja alla náttúrufræðinga sem luma á
góðu efni að vera duglegir að skrifa,
því með samshlltu átaki er ég sartnfærð
um að við getum náð takmarkinu.
Enda þótt Náttúrufræðingurinn hah
verið einna fyrirferðarmestur í starf-
semi Hins íslenska náttúrufræðifélags í
seinni tíð hefur eitt helsta markmið
félagsins frá upphah verið að koma
upp náttúrugripasafni. Það er ótrúlegt
að rík þjóð eins og Islendingar skuli
ekki vera búin að byggja yhr og treysta
enn frekar það náttúrugripasafn sem
áhugamannafélag gaf henni fyrir 60
árum. Þegar Hið íslenska náttúru-
fræðifélag gaf ríkinu safnið árið 1947
fylgdi því byggingarsjóður og var gert
ráð fyrir að ríkið byggði yfir safnið. Nú
60 árum síðar er safnið í óviðunandi
ástandi og þarf vart að rifja það upp
efhr mikla umfjöllun í fjölmiðlum síð-
ustu mánuði. Á haustþingi lagði
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra fram frumvarp
til laga um Náttúruminjasafn íslands.
Með gildistöku þeirra laga verður
safnið eitt þriggja höfuðsafna íslend-
inga, ásamt Þjóðminjasafni Islands og
Listasafni íslands. Stjóm félagsins telur
brýnt að lögin verði samþykkt sem
fyrst þannig að hefja megi öhugt starf
við skipulag og uppbyggingu safnsins.
Það er afar mikilvægt að uppbygging
glæsilegs safns verði nú að veruleika
og við upplifum ekki enn einu sinni
síendurtekin vonbrigði 20. aldar, því í
harmasögu náttúrugripasafnsins hefur
oftar en einu sinni verið búið að út-
hluta lóð og allt bent hl þess að sigur
væri í höfn þegar eitthvað kom upp á
sem stöðvaði málið. Ég hvet alla sem
að málinu koma hl að stefna að því að
á árinu 2007, á 60 ára afmæli gjafar
Hins íslenska náttúrufræðifélags, verði
lokið við formlegar hliðar málsins
þannig að unnt verði að hefja fram-
kvæmdir svo veglegt safn verði opnað
á 120 ára afmæli Náttúrugripasafnsins
og Hins íslenska náttúrufræðifélags
árið 2009.
Á langri ævi félagsins hefur það átt
marga velunnara. Rétt fyrir sl. jól barst
því rausnarleg gjöf frá einum ævi-
félaga sínum, Sigurði Bjamasyni sem
búsettur er í Noregi. Tölvufyrirtæki
Sigurðar og eiginkonu hans, Paritet
AS, hefur það í stefnu sinni að verja
hluta hagnaðar hl styrkja, þar af helm-
ingnum hl menningarmála. Árið 2006
ákvað Sigurður að styrkja Hið íslenska
náttúrufræðifélag vegna þess hve
félagið og Náttúrufræðingurinn hefðu
veitt honum mikla ánægju allt frá því
að hann var drengur. Ég vil fyrir hönd
félagsins þakka þessa höfðinglegu gjöf.
Kristín Svavarsdóttir, formaður HÍN
Leiðrétting: í Náttúrufræðingnum 74. árg. 3.-4. hefti urðu þau mistök að 4. tafla kom í stað 5. töflu á bls. 98. Þetta leiðréttist
á meðfylgjandi einblöðungi og er beðist velvirðingar á mistökunum.
3