Náttúrufræðingurinn - 2007, Page 4
Náttúrufræðingurinn
Bergþór Jóhannsson
mosafræðingur
Minningarorð
Á aðventu 2006 var til moldar borinn í Reykjavík
Bergþór Jóhannsson, eini mosafræðingurinn sem
ísland hefur alið. Mig langar til að minnast Bergþórs,
fyrst og fremst fyrir hans merka framlag til þekking-
ar á náttúru íslands en einnig sem samstarfsmanns
og vinar.
Bergþór var fæddur í Goðdal á Ströndum 11. des-
ember árið 1933. Goðdalur liggur skammt norðan
Hólmavíkur og segir í Árbók Ferðafélagsins árið
1952 að þar sé „aðkreppt nokkuð eins og jafnan í
þröngum dölum". Bæjarhúsin stóðu innarlega í
dalnum og nokkrir kílómetrar til næsta bæjar.
Foreldrar Bergþórs voru Jóhann Kristmundsson (f.
23. júlí 1906) og Svanborg Ingimundardóttir (f. 19.
júlí 1913). Á undan þeim bjó í Goðdal afi Bergþórs,
Kristmundur Jóhannsson, sem var rómaður jarð-
ræktarmaður og hlaut fyrir verðlaun úr sjóði Krist-
jáns konungs IX. í Goðdal ólst Bergþór upp við hefð-
bundin landbúnaðarstörf þess tíma ásamt systkinum
sínum, Hauki (f. 1935), Erlu (f. 1937), Svanhildi (f.
1940) og Ásdísi (f. 1946). Þeir Haukur voru sendir í
heimavistarskóla á Reykjum í Hrútafirði og þar barst
Bergþóri sú frétt í desember 1948 að snjóflóð hefði
fallið á bæinn í Goðdal og að móðir hans og tvær
i
4