Náttúrufræðingurinn - 2007, Page 6
Náttúrufræðingurinn
Sæmundssonar um íslenska fiska (1896-1939), rann-
sóknir Helga Jónssonar á íslenskum sæþörungum
(1901-1912) og síðast en ekki síst Flóru íslands sem
Stefán Stefánsson gaf út árið 1901 og sem enn er eina
vísindalega háplöntuflóra landsins. Það er gæfa
hverrar þjóðar að eignast menn sem af hugsjón og
elju ryðja brautina og helga líf sitt þessum risavöxnu
verkefnum. í því felst einnig mikil auðna að mega
kveðja eftir að hafa skilað slíku ævistarfi.
Bergþór var stundakennari við líffræðiskor
Háskóla íslands í 21 ár, frá 1969 til 1989, og kenndi
bæði skyldunámskeið í grasafræði og sérstakt nám-
skeið um mosa. Einkenndist kennsla hans af vand-
virkni og alúð og þeim ströngu kröfum sem Bergþór
gerði til allra sinna starfa. Bergþór er minnisstæður
þeim fjölmörgu líffræðinemum sem hann kenndi og
minnast þeir hans jafnan með hlýhug og virðingu.
Bergþór var þó ekki neinn venjulegur kennari, held-
ur hafði eigin aðferðir sem nemendur löguðu sig að.
Af honum gengu ýmsar sögur, en eina má segja hér
þar sem hún sýnir hvílíkur prinsippmaður Bergþór
var. Stundakennarar við Háskóla Islands höfðu boð-
að verkfall sem Bergþór var ekki sáttur við. Sam-
kennari hans átti leið fram hjá kennslustofu sem átti
að vera tóm en heyrði sér til undrunar að þar var ver-
ið að kenna. Það var Bergþór sem hélt sinn fyrirlestur
eins og til stóð - þótt enginn nemandi væri mættur.
Ég kynntist Bergþóri fyrst á Líffræðistofnun, sem
þá var til húsa á Grensásvegi 12. Þetta var fyrir daga
skoðanakannana eða tölvuspáa og þegar nálgaðist
kosningar var Bergþór í essinu sínu á kaffistofunni.
Hann hafði gaman af að velta fyrir sér pólitík og var
glúrinn að spá fyrir um úrslit. Mér er Bergþór
minnisstæður sitjandi við borðsendann - kannski
spurður um gengi Alþýðuflokksins í Reykjavík.
Hann veifaði sígarettunni, rúllaði henni milli fingra
sér, hleypti brúnum undir þykkum gráum hármakk-
anum og tók sér kúnstpásu áður en hann útlistaði
spána með hárfínum rökum. Bergþór var einnig fjöl-
fróður um fornsögur. Höfundur Njálu hlýtur að vera
kona, sagði Bergþór, og heila nótt man ég eftir að
hann hélt föngnum hópi líffræðinema og kennara á
samkomu í húsi við Laufásveg meðan hann skýrði
hugmyndir sínar og kenningar, meðal annars þá að
höfundurinn væri Steinvör Sighvatsdóttir Sturluson-
ar, sem giftist Oddaverja og bjó að Keldum og var
talin mesti kvenskörungur á Islandi á sinni tíð, eins
og segir í íslenskum æviskrám.
Seinna unnum við Bergþór saman á vettvangi Hins
íslenska náttúrufræðifélags. Hann sat lengi í stjórn,
var varaformaður um hríð, og alla tíð mikill velunn-
ari félagsins. Bergþór gjörþekkti sögu þess og hefðir,
en það er eitt elsta félag íslendinga, stofnað 1889.
Loks sátum við Bergþór saman í fyrstu stjórn Nátt-
úrufræðistofnunar Islands og þar kynntist ég honum
best. Hann var ráðhollur og velviljaður og ævinlega
mátti treysta dómgreind hans. Bergþór var aldrei að
flýta sér. Hann hafði alltaf tíma, tíma til að hjálpa
þeim sem leituðu til hans með mosa til greiningar,
hann tók sér tíma til að velta fyrir sér álitamálum og
hann átti alltaf tóm til að ræða málin yfir kaffibolla -
en þá fékk ég marga heima hjá þeim Dóru á þessum
árum. Þetta var áður en Bergþór veiktist en í næstum
áratug vann hann í kapp við tímann, oft fársjúkur,
við að ljúka sínu ætlunarverki.
Bergþór sinnti rannsóknum sínum í kyrrþey en af
fádæma elju og þrautseigju. Hann var einstaklega
nákvæmur og vandvirkur en jafnframt afkastamikill.
Hann var heilsteyptur hugsjónamaður, metnaðar-
gjarn sem fræðimaður en ekki í þeim skilningi að
hann sæktist eftir persónulegri umbun fyrir störf sín.
Sýndarmennska og prjál var eins fjarri Bergþóri og
hugsast getur. Yfirborðið gat verið hrjúft og gneypt
eins og þau vestfirsku fjöll sem hann ól æsku sína við
og ekki fer hjá því að áfall eins og það sem hann varð
fyrir ungur skilji eftir mark. En hjartað var hlýtt.
Bergþór var sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við
raunvísindadeild Háskóla Islands árið 2000. Góður
drengur og mikill fræðimaður er genginn með
Bergþóri Jóhannssyni. Blessuð sé minning hans.
Þóra Ellen Þórhallsdóttir
Líffræðistofnun Háskólans
6