Náttúrufræðingurinn - 2007, Qupperneq 15
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
3. mynd. Sjávarhiti við botn í Stofnmæl-
ingu botnfiska í köldu ári (1989), meðalári
(1994) og hlýju ári (2003). - Near-bottom
temperature in the lcelandic Groundfish
Survey in March in a cold year (1989),
average year (1994) and warm year (2003).
2003 til 2006 voru með þeim hlýjustu
frá upphafi SMB, eða að meðaltali
um 2-3°C hlýrri en áðurnefnd köld
ár (2. og 3. mynd). Fyrstu ár stofn-
mælinganna voru fremur köld á
Suðurmiðum, ólíkt Norðurmiðum.
Frá 1996 hefur hitastig yfirleitt verið
um eða yfir meðaltali tímabilsins og
líkt og fyrir norðan hafa árin frá og
með 2003 verið hlý (2. og 3. mynd).
Þessar breytingar á botnhita í
SMB í mars eru í samræmi við aðrar
mælingar Hafrannsóknastofnunar-
innar á ástandi sjávar. Haffræðingar
flokka árin 1989, 1990 og 1995 til
svalsjávarára fyrir norðan land en
hlýnað hefur frá 1995.14 Frá 1999
hafa hiti og selta á Norðurmiðum
verið yfir meðallagi flest ár sem
bendir til meira flæðis selturíks
hlýsjávar norður fyrir land. Fyrir
Suðurlandi voru hiti og selta tiltölu-
lega lág á árunum 1985 til 1988 og
aftur 1992 til 1995 en frá árinu 1996
hefur sjórinn verið yfir meðallagi
hlýr og selturíkur.14
Skoða má breytingar á stærð
svæða þar sem ákveðið hitastig rík-
ir út frá mælingum í SMB, því hita-
stig er mælt vítt og breytt um miðin.
Þannig er hægt að meta hve stórt
svæði er undir eða yfir ákveðnu
hitastigi (4. mynd). Slíka útreikn-
inga má nota til að áætla hve stórt
svæði hentar hverri fisktegund fyrir
sig ef upplýsingar um kjörhita og
hitaþol tegundanna liggja fyrir.
Þessar mælingar takmarkast við að-
stæður nærri botni og aðferðin
hentar því illa fyrir tegundir sem
fara mikið upp í sjó.
ÚTBREIÐSLA SRÖTUSELS
Heimkynni þeirrar tegundar skötu-
sels sem veiðist hér við land eru í
austanverðu Atlantshafi frá Islandi
og Norður-Noregi allt til Gíbraltar-
sunds og inn í Miðjarðarhaf.1 Þrjár
aðrar tegundir skötusels, náskyldar
þeirri sem er hér við land, er að
finna í Atlantshafi. Litli skötuselur
(L. budegassa) á sér heimkynni við
Afríkustrendur frá Senegal norður
um til Bretlandseyja. Þessi tegund
finnst stöku sinnum við Færeyjar og
hugsanlegt er að hún flækist á
íslandsmið þótt ekki sé það staðfest.
Við Atlantshafsstrendur Suður-
Afríku og norður fyrir Namibíu er
að finna tegund sem kalla má
djöflaskötusel (L. vomerinus, e:
Devil anglerfísh). Þriðja tegundin er
svo Ameríkuskötuselurinn (L.
americanus) sem á sitt búsvæði við
Ameríkustrendur allt frá Ný-
fundnalandi suður undir Panama-
skurð.
Skötuselur hefur fundist allt í
kringum Island en hefur þó löngum
verið algengastur við sunnanvert
landið. Þar hefur þó orðið nokkur
breyting á eins og sjá má á magni og
útbreiðslu skötusels í SMB (5.
mynd). Frá 1985 til 1997 fékkst
skötuselur nær einungis úti fyrir
Suðurlandi og Faxaflóa og Jþar
víðast í frekar litlum mæli. Arið
1998 varð aukningar vart við
4. mynd. Flatarmál íslandsmiða (grynnra en 400 m) þar sem botnhiti í Stofnmælingu
botnfiska í mars er yfir ákveðnu gildi (0,1, 3, 5, og 7°C). Breiða lárétta línan efst á mynd-
inni sýnir heildarflatarmál svæðisins þar sem dýpi er minna en 400 m. Dæmi: Ef 5°C-
línunni erfylgt má sjá að flatarmál miðanna þar sem botnhiti er yfir 5°C hefur aukist úr
14 þúsund fermílum árið 1985 í 22 þúsund fermílur árið 2006. - The area (square miles)
oflcelandic zvaters above 400 m where bottom temperature in the lcelandic Groundfish
Survey in March is greater than a given value. The horizontal line at the top ofthe figure
indicates the total area where depth is less than 400 m.
15