Náttúrufræðingurinn - 2007, Side 31
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
10. mynd. Einfölduð þverskurðarmynd afþáttum sem stjórna dreifingu setefna og þeitn
setgerðum sem myndast í kjölfarið. (Byggt á G.H. Readittg.15) - Cross-section illustrat-
ing the distributional mechanisms and resulting sediment types.
Fínkornótt setefnin bárust því út í
djúpvatnsumhverfi og mynduðu
þykkan stafla af fínlega lagskiptum
siltsteinslögum. Gráleitur siltsteinn
er ráðandi setgerð á vatnsbotnin-
um, en þegar aðflutningur land-
rænna rofefna var í lágmarki náðu
lífræn ferli yfirhöndinni og lífverur
í sviflausn tóku að setja mark sitt á
setmyndunina. Þegar þetta átti sér
stað voru kísilþörungar ráðandi líf-
verur og við dauða þeirra myndað-
ist þykk kísileðja á stöðuvatnsbotn-
inum (ásýndarhópur B). Veðrun
jarðlaga í kring leysti kísil úr hraun-
lögum og vatnsflaumur flutti efnin
út í stöðuvatnið. Kísilþörungar sem
lifðu í vatninu notfærðu sér þennan
kísil til að byggja upp skeljar sínar.
Þegar kísilþörungarnir dóu sukku
skeljar þeirra til botns og mynduðu
hvíta, létta setgerð, svonefndan
kísilgúr. Eftir langt goshlé urðu set-
efnin fínkornótt og kísilgúr varð
ráðandi setgerð. Inn á milli silt-
steinslaga og kísilgúrlaga eru lóð-
greind sandsteinslög með skörp
neðri lagmót. Grunnur einstakra
laga er oft markaður af rofmörkum.
Þessi roflög eru hugsanlega afleið-
ing iðustrauma, þar sem eðlis-
þyngdarstraumar (iðustraumar)
bera setefni frá strandlægum
svæðum til djúpvatnssvæða. Iðu-
straumasetið getur hafa myndast
vegna þess að vatnsborðið lækkaði
tímabundið og árósar sóttu irm yfir
fínni setefni, eða vegna flóða
og/eða jarðskjálfta. Sum grófkorn-
óttu lögin eru ösku- eða gjóskulög
er endurspegla eldvirkni á svæðinu.
Loks hætti kísileðja að safnast
fyrir og aðflutt landræn rofefni
urðu ráðandi á ný. Straumvötn
fluttu silt út í stöðuvatnið og þykk
brúnleit siltsteinslög (ásýndarhópur
C) mynduðust. Siltið settist til í
dýpri hluta lægðarinnar þar sem
árósar höfðu lítil sem engin áhrif
á setmyndunina (11. mynd B).
Brúnu siltsteinslögin eru stundum
lagskipt og lagþyrmótt. Lagskipt-
ingin myndast samfara auknu
magni kísilþörunga, en oftast er silt-
steinninn frekar einsleitur. Breyt-
ingin á lagskiptum og ólagskiptum
seteiningum gæti bent til breyti-
legra súrefnissnauðra og súrefnis-
ríkra botnaðstæðna. í stöðuvötnum
þar sem nóg er af súrefni á botnin-
um er mikið um smáar lífverur sem
lifa í setinu og færa til setkorn og
veldur lífstarfsemi þeirra því að öll
lagskipting hverfur. Þykku og eins-
leitu siltsteinslögin eru líklega kom-
in til vegna hraðrar setsöfnunar þar
sem setið inniheldur mikið af niður-
rifnum plöntuleifum (smágerving-
ar). Tiltölulega þykk sandsteinslög
skera brúna siltsteininn. Þessi sand-
steinslög eru gosræn að uppruna
(túff) og endurspegla vaxandi eld-
virkni á svæðinu. Þykk fínkornótt
lög (túfflögin í ásýndarhópi D) sem
liggja ofan á brúna siltsteininum
endurspegla enn meiri eldvirkni.
Seinni stig í þróun stöðuvatnsins
einkennast af því að setefni verða
grófari. Sandsteinslög verða ráð-
andi og set flutt af iðustraumum frá
árósum verður áberandi. Lægðin
hefur tekið við miklu gosrænu set-
efni á stuttum tíma og vatnsborðið
hefur lækkað töluvert. Straumvötn
sem renna í vatnið eru smám saman
að fylla upp í stöðuvatnið og mýra-
og fenjasvæði að ná meiri út-
breiðslu meðfram ströndum þess.
Straumvötnin sækja inn yfir stöðu-
vatnssetlögin og rjúfa sér leið niður
í áðurmynduð setlög, sem eru fín-
korna og einkennandi fyrir dýpra
umhverfi. Setefni verða sífellt gróf-
kornóttari upp á við og setumhverf-
ið mótað af straumvatnaferlum (11.
mynd C).
Stöðuvatnið varð fyrir enn meiri
áhrifum frá eldvirkni þegar gríðar-
legt gjóskugos (eldgos í stöðuvatni)
átti sér stað og mikið af grófkorna
gjósku (bergbrots-túff) safnaðist
fyrir í vatninu og myndaði víðáttu-
mikið, þykkt lag (ásýndarhópur L).
Gosrænu setlögin sem mynduðust
voru þykk og fylltu nánast upp í
lægðina sem geymdi stöðuvatnið
(11. mynd D). Eldgosið dreifði
miklu setefni yfir allt svæðið og má
sjá þessa gjósku ofan á hraunlögum
við strendur stöðuvatnsins. Eftir
gosið héldu straumvötn áfram að
bera set út í stöðuvatnið og aflöng
árósasvæði urðu áberandi. Víðáttu-
miklar mýrar náðu yfirhöndinni á
milli árósa og mór tók að myndast.
Stöðuvatnið fylltist af grófu straum-
vatnaseti og mýrar sóttu inn að
31