Náttúrufræðingurinn - 2007, Side 36
N áttúrufræðingurinn
3. mynd. Grafið eftir sandskel. Ljósm. Þórður Örn Kristjánsson.
verð hækkað (Anon., 1996J). Hæst
verð fæst fyrir lifandi sandskel en
hún er einnig fryst eða soðin niður
með eða án skelja.
Sandskel er matreidd á margvís-
legan hátt, oft á sama hátt og kræk-
lingur þar sem hún er soðin í eigin
soði í nokkrar mínútur og síðan
snædd beint úr skelinni. Einnig er
sandskel notuð í súpur og ýmsa
sjávarrétti.
ÚTBREIÐSLA
Sandskel er útbreidd víða á norður-
hveli jarðar. Skelin finnst beggja
vegna Atlantshafsins frá Hvítahafi til
Portúgal en vestan megin frá
Labrador til Georgíu. Hún finnst
einnig við austurströnd Kyrrahafsins
frá Alaska til Kalifomíu (4. mynd).
Tegundin var útdauð á þessum
svæðum á ísöld en nam aftur land
við strendur Evrópu á 13. og 14. öld
og við strönd Austur-Kyrrahafsins á
20. öld.9 A nokkrum stöðum í Evrópu
hefur sandskel fimdist á síðustu ára-
tugum og má þar nefna að Svartahaf
árið 1966,18 Búlgaríu 197419 og nýlega
Suður-Frakkland.20
Landnám skelja ræðst af ýmsum
þáttum og má þar nefna náttúruleg-
ar orsakir (lirfur berast með straum-
um), ásetning (skelinni er plantað)
eða að lirfur berast með kjölfestu-
vatni skipa eða með eldistegundum
milli landa (ostrur). Vissir líffræði-
legir þættir stuðla að skjótri út-
breiðslu tegunda, eins og frjósemi,
hæfileiki til að geta lifað við fjöl-
breyttar aðstæður, nýtt fjölbreytta
fæðu, þolað sveiflur í hita og seltu,
og loks langlífi og stærð. Allt þetta
er talið eiga við um sandskel.
Þéttleiki sandskelja getur verið
mjög breytilegur eftir svæðum og
innan sama svæðis á milli ára. I Bret-
landi hefur þéttleikinn mælst 5-300
einstaklingar/m2,21 og í Norðursjó
1-243 einstaklingar/m2 og meðal-
fjöldinn 12 einstaklingar/m2.22 I
Óslóarfirði fundust 115 einstakling-
ar/m2 þar sem skelin var þéttust11 en
í Svartahafi hafa fundist allt upp í
2000 einstaklingar/m2.18 Hnapp-
dreifing er velþekkt hjá sandskel,
bæði fullorðinni skel og ungviðinu,
og eru aðalástæður fárra árganga á
sama stað taldar vera afrán annarra
dýra,22 breytingar í umhverfisþátt-
um þar sem hrygning heppnast vel
eða illa eftir árferði23eða að árgangar
sem til staðar eru þurrkast út vegna
mikilla frosta.24
SANDSKEL VIÐ ÍSLAND
Sandskel hefur ekki fundist hér í
fornum skeljalögum, hvorki fyrir né
eftir jökultímann25 og er landnám
þessarar tegundar talið nýlegt á Is-
landi. Skelin fannst hér fyrst árið
1958 í Hornafirði26 og ári seinna við
Dyrhólaey.25 Árið 1960 fannst sand-
skel við Vestmannaeyjar og í Graf-
arvogi27 og hefur síðan fundist víða
en oftast í litlum mæli.
Umtalsverðar magnbundnar
rannsóknir á botndýralífi í nágrenni
Reykjavíkur og víðar um landið
4. mynd. Útbreiðsla sandskelja í Atlantshafi og Kyrrahafi.
aAnonymus 1996. Species clam softshell. Species Id M060160. <http:fwie.fw.vt.edu/WWW/macsis/lists/M060160.htm>.
36