Náttúrufræðingurinn - 2007, Síða 54
Náttúrufræðingurinn
6. mynd a. Gullþörungar (Chrysophyceae).
Myndin sýnir tegund af ættkvísl Din-
obryon sem fannst í nokkrum fjölda frá
miðjum júlí til júlí loka (mest tæpar 235 þús.
frumur/lítra þann 31. júlí). - Chrysoph-
yceae, species ofthegenus Dinobryon ivhich
wasfound in relatively high numbers in late
July (highest number was 235 thousand
cells/l on July 31st). Ljósm./photo: Y. Tsukii
(Protist Information Server).
6. mynd b. Tegundin Apedinella spini-
fera af flokki Dictyochophyceae, kom fram
tvisvar í sýnum, þann 26. júní (tæpar 2
milljónir fruma/lítra) og 17. júlí (tæpar
360 þús. frumur/lítra). - The species
Apedinella spinifera was seen tivice, on
June 26th (nearly 2 million cells/l) and on
July 17"' (around 360 thousand cells/l).
Ljósm./Photo: Figure: Florence Le Call,
Station Biologique de Roscoff.
7. mynd. Kalksvifþörungurinn Emiliania
huxleyi, sem greindist í sýnum frá ágúst
og september. Þessi tegund getur myndað
mikla blóma og eru þeir vel þekktir í
hlýsjónum suður og vestur af landinu. -
The coccolithophorid Emiliania huxleyi,
was detected in samples from August and
September. This species is known to form
large blooms in Atlantic water south and
south-west of Iceland.
Nitur og fosfór í sjó eru í tiltölu-
lega hraðri lífefnafræðilegri hring-
rás og nýtast oftast margsinnis í
efsta lagi sjávarins yfir vaxtartíma
svifþörunga (3. mynd). Þannig nýta
svifþörungarnir yfir sumartímann
endurunnin næringarefni auk þess
sem næringarefni kunna að berast
inn á svæðið með straumi. Upp-
spretta niturs er því önnur á sumrin
en að vorinu, þar sem það nitur sem
er endurunnið er tekið upp af svif-
þörungum nærri því jafnóðum. Því
mælist styrkur nítrats hverfandi
lítill en nitur á öðrum efnaformum
kann að vera til staðar. Ólíkir hópar
svifþörunga hafa mismunandi
eiginleika til að nýta endurunnið
nitur en auk þess eru nokkrar teg-
undir svifþörunga sem geta stund-
að frumuát og taka á þann hátt til
sín nauðsynleg næringarefni.24,25 Það
eru einkum skoruþörungar sem
geta fjölgað sér við þessi skilyrði.
Þegar tekur að hausta og uppblönd-
un verður aftur í sjónum berast
næringarefni upp í efsta lag hans.
Við það eykst vöxtur svifþörunga
og verður þá oft haustblómi bæði
kísilþörunga og skoruþörunga.12
Eiturþörungar
Sumar tegundir svifþörunga mynda
eitur við ákveðnar aðstæður (8.
mynd). Óljóst er hvað örvar blóma
eiturþörunga og stuðlar að myndun
eiturs.26,27 Það eru aðallega skoruþör-
ungar sem geta myndað þörunga-
eitur en einnig fáeinar kísilþörunga-
tegundir (t.d. Pseudo-nitzsichia-teg-
undir). Eitraðir skoruþörungar fjölga
sér einkum þegar hitastig er hátt, lag-
skipting mikil og lítið af næringar-
efnum til staðar.27,28 Lítið er vitað um
hvað kemur eiturmyndun af stað hjá
kísilþörungum.29,30 Fari magn þessara
tegunda yfir ákveðin mörk er hætta
á að eitrið safnist upp í skelfiski á
svæðinu. Það hefur ekki áhrif á
skelfiskinn en hann verður vafa-
samur til neyslu. Við Island hefur
8. mynd. Nokkrar af algengustu svifþörungategundum við landið sem geta myndað þörungaeitur. a) Alexandrium tamarense sem er
skoruþörungur og getur valdið PSP-eitrun, b) skoruþörunginn Dinophysis norvegica sem getur valdið DSP-eitrun, c) kísilþörunginn
Pseudo-nitzschia pseudodelicatissima sem getur valdið ASP-eitrun. - Some of the most common phytoplankton species found in
Icelandic waters thatform toxins. a) Alexandrium tamarense a dinoflageUate that can cause PSP-poisoning, b) Dinophysis norvegica
a dinoflagellate that can cause DSP-poisoning, c) Pseudo-nitzschia pseudodelicatissima a diatom that can cause ASP-poisoning.