Náttúrufræðingurinn - 2007, Qupperneq 55
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
mælst eitur í skelfiski af völdum
skoruþörunga sem vaxa aðallega að
sumrinu og fram á haust.19,31 Um er
að ræða PSP-eitrun (paralytic shell-
fish poisoning) af völdum Alexandri-
íí/íz-tegunda og DSP-eitrun (diarr-
hetic shellfish poisoning) af völdum
Dinophysis-tegunda. Kísilþörungar
af ættkvíslinni Pseudo-nitzschia geta
valdið ASP-eitrun (amnesic shellfish
poisoning).30 Eitrun af völdum kísil-
þörunga hefur ekki mælst í skelfiski
hér við land en tegundir sem geta
valdið ASP-eitrun finnast í sjónum
við ísland.
Efniviður og aðferðir
Yfirborðssýnum til talninga á svif-
þörungum og til mælinga á næring-
arefnum var safnað um það bil
vikulega frá miðjum febrúar 2000
og fram í miðjan nóvember sama ár
á einni stöð úti fyrir bænum Brekku
9. mynd. Niðurstöður mælinga á næringarefnum, seltu og blaðgrænu íyfirborðslögum íMjóafirðifrá 15.febrúar til 13. nóvember 2000,
a) nítrat, b) kísill, c) blaðgræna, d) selta, e) ammóníak, f) fosfat, g) uppleyst lífrænt nitur og h) uppleystur lífrænn fosfór. - Nutrients
and chlorophyll concentrations and salinity at the surface of Mjóifjörður from February 15th to November 13th 2000; a) nitrate, b) sil-
icate, c) chlorophyll, d) salinity, e) ammonia,f) phosphate, g) dissolved organic nitrogen and h) dissolved organic phosphorous.
55