Náttúrufræðingurinn - 2007, Síða 58
Ná ttú ru f ræðingurinn
framboð lífrænt bundins niturs,
sem nýtist flestum kísilþörungum
illa, og frumuát (phagotrophy) er
einnig þekkt meðal sumra skoru-
þörunga þegar lítið framboð er á
næringarefnum í upplausn.24-25 Auk
kísil- og skoruþörunga greindust
aðrir hópar svifþörunga yfir sumar-
tímann en þó yfirleitt aðeins í stutt-
an tíma, eins og gullþörungurinn
(Chrysophyceae) Dinobryon sp., teg-
undin Apedinella spinifera af flokki
Dictyohophyceae, ógreindir smá-
vaxnir svipuþörungar sem teljast til
annarra hópa en skoruþörunga og
kalksvifþörungurinn Emiliania hux-
leyi. Þessir hópar vaxa aðallega yfir
hásumarið þegar næringarefna-
framboð er af skornum skammti.36
Þeir hafa hugsanlega vaxið upp í
firðinum, en þar sem þeirra varð
vart í stuttan tíma er mögulegt að
þeir hafi borist inn á fjörðinn með
straumum.'' Þar eð sýnatakan var
bundin við eina stöð er þó ekki
hægt að fullyrða neitt um það.
Framvinda svifþörunganna var í
stórum dráttum áþekk því sem
þekkist annars staðar við Island og
er einkennandi fyrir norðlægar
slóðir.19,31 Fyrst að vorinu komu
fram kísilþörungar þegar styrkur
næringarefna var hár; þetta voru
litlir og miðlungsstórir kísilþörung-
ar sem mynda oft langar keðjur og
einkenna svifgróðurinn fyrst að
vorinu þegar lagskipting er enn til-
tölulega veik. Þegar fór að ganga á
næringarefnin urðu aðrir hópar
meira áberandi, einkum skoruþör-
ungar ásamt öðrum tegundum
kísilþörunga, og yfir hásumarið
voru smávaxnir svipuþörungar
ásamt kalksvifþörungum til staðar.
Að sumrinu var tegundasamsetn-
ing svifþörunganna í Mjóafirði fjöl-
breytt og enginn einn hópur þör-
unga ríkjandi. Haustblómi svifþör-
unganna var ekki mjög stór, en þó
mældist meira af bæði kísil- og
skoruþörungum fyrri hluta septem-
ber ásamt auknum fjölda kalksvif-
þörungsins Emiliania huxleyi.
Þær svifþörungategundir sem
geta myndað eitur og fundust í
Mjóafirði eru þekktar víða við land-
ið. Skoruþörungategundir af ætt-
kvísl Alexandrium (PSP-eitrun) voru
algengar í svifinu snemma sumars
en tegundir af ættkvísl Dinophysis
(DSP-eitrun) voru algengar um há-
sumar og þegar sumri var farið að
halla. Rannsóknir á framvindu svif-
þörunga inni á öðrum fjörðum
landsins sýna áþekka framvindu eit-
urþörunga og varð í Mjóafirði árið
2000.19-31,37 Hér við land hafa talning-
ar á þessum tegundum leitt í Ijós
fjölda yfir viðmiðunarmörkum um
hættu á skelfiskeitrun (500 frumur í
lítra af Alexandrium-tegundum og
1.000 frumur í lítra af Dinophysis-
tegundum.38 í Mjóafirði fór fjöldi
bæði Alexandrium- og Dinophysis-
tegunda talsvert yfir þessi viðmið-
unarmörk og þannig var möguleiki
á eitrun í skelfiski frá lokum júní og
út september en mælingar á hugs-
anlegri eitrun í skelfiskinum voru
ekki gerðar í þessari rannsókn.
Pseudo-nitzschia pseudodelicatis-
sima hefur fundist í töluverðum
mæli í strandsjónum við Island,
einkum yfir sumartímann.19,31 I
Mjóafirði fór fjöldi Pseudo-nitzschia
pseudodelicatissima aldrei yfir 100
þús. frumur/lítra, sem eru viðmið-
unarmörk um hættu á eitrun.38 Til
eru mismunandi stofnar af Pseudo-
nitzschia pseudodelicatissima og valda
sumir þeirra ASP-eitrun.29 Ekki er
vitað hvort stofninn sem finnst hér
við land myndar eitur.
Þar sem eingöngu var safnað yfir-
borðssýnum á einni stöð í þessari
rannsókn hafa höfundar ekki vit-
neskju um breytileika með dýpi eða
aðstæður annars staðar í Mjóafirði.
Niðurstöður rartnsókna úr öðrum
fjörðum benda til þess að tegunda-
samsetning svifþörunganna breytist
lítið með dýpi en magnið getur verið
mjög breytilegt. Rannsókn úr Hval-
firði 1997 sýndi minni styrk blað-
grænu a (lífmassa svifþörunga) við
yfirborðið en dýpra í vatnssúlunni.19
Að öllum líkindum er mikill breyti-
leiki bæði í tíma og rúmi á dýptar-
dreifingu svifgróðurs í Mjóafirði.35
Lokaorð
Vöxtur svifþörunga hófst tiltölu-
lega seint að vorinu í Mjóafirði
(maí) miðað við aðra firði sem
hafa verið rannsakaðir á Islandi
(mars-apríl), sem aftur leiðir til
styttra gróðurtímabils en til dæmis í
fjörðum vestanlands. Þetta kann að
vera vísbending um minna fæðu-
framboð fyrir krækling í Mjóafirði
en í ýmsum öðrum íslenskum fjörð-
um. Skelfiskeitur var ekki mælt í
kræklingi árið 2000, en hætta á eitr-
un af völdum eiturþörungategunda
er til staðar í Mjóafirði. Við Island
hafa greinst um 10 tegundir svif-
þörunga sem eru taldir geta mynda
þörungaeitur, af þeim fundust 7 í
Mjóafirði árið 2000. Þessar niður-
stöður sýna að nauðsynlegt er að
vakta ræktunarsvæði skelfisks á
Islandi m.t.t. svifþörunga frá apríl
og fram í október. Stöðugt framboð
á kísli viðhélt vexti kísilþörunga allt
sumarið en framboð niturs hafði
mikil áhrif á framvindu svifþör-
ungasamfélaga í firðinum, þar sem
fosfat var ávallt til staðar í nægu
magni.
SUMMARY
Surface samples from a single station in
Mjóifjörður fjord, eastem Iceland, were
collected on a weekly basis during the
year 2000 for measurements of nutrients
and chlorophylla, phytoplankton species
composition and quantitative analyses
thereof. Inorganic nutrient concentra-
tions decreased very rapidly in May at
the offset of phytoplankton production.
Nitrate remained depleted during the
whole productive season but phyto-
plankton production was sustained by
ammonia and dissolved organic nitro-
gen. Diatoms were the main species of
the spring bloom and were found in
relatively high numbers throughout the
summer, probably due to steady input of
silicate from freshwater runoff. A few
toxic phytoplankton species were pres-
ent in the fjord during the summer
months, periodically in numbers above
risk limits for mussel consumption.
58