Náttúrufræðingurinn - 2007, Page 61
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Sveinn Kári Valdimarsson
NÁTTÚRUSTOFA REYKjANESS
1. mynd. Húsnæði Náttúrnstofu að Garðvegi 1. Ljósm.: Sveinn Kári Valdimarsson.
Náttúrustofa Reykjaness hefur að-
setur í Sandgerði, á Garðvegi 1, og
er í sama húsnæði og Fræðasetrið,
Botndýrastöðin og Háskólasetur
Suðurnesja. Að Botndýrastöðinni
standa Hafrannsóknastofnunin,
Háskóii Islands og Náttúrufræði-
stofnun Islands og því má segja að á
Garðvegi 1 sé kominn upp áhuga-
verður vísir að litlu vísindasam-
félagi. Grindavíkurbær og Sand-
gerðisbær standa að rekstri Nátt-
úrustofu Reykjaness.
A Náttúrustofu Reykjaness hefur
verið lögð áhersla á náið og gott
samstarf við innlendar sem er-
lendar rannsóknastofnanir. Enda er
það ein af frumforsendum þess að
litlar stofnanir geti náð að dafna.
Námsverkefni hafa verið áberandi
enda mikilvægt að kynna svæðið
fyrir námsfólki og auka fjölbreytni
náms á svæðinu. Svo sem lög kveða
á um (lög um Náttúrufræðistofnun
íslands og náttúrustofur nr. 60 frá
1992, með síðari breytingum frá
2002) safnar stofan gögnum og
heimildum um náttúrufar Reykja-
nesskagans. Þar er veitt fræðsla og
ráðgjöf um umhverfismál og nátt-
úrufræði og hefur hún sinnt verk-
efnum fyrir sveitarfélög, ríki,
einstaklinga, fyrirtæki og aðra aðila.
Starfsmenn stofunnar eru fjórir.
Sveinn Kári Valdimarsson veitir
stofunni forstöðu. Hann er líf-
fræðingur frá Háskóla íslands og
lauk doktorsprófi í dýrafræði frá
Háskólanum í Glasgow. Sveinn
hefur aðallega fengist við atferlis-
2. mynd. Hópurfólks við fuglamerkingar. Ljósm.: Sveinn Kári Valdimarsson.
61