Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1965, Page 7

Náttúrufræðingurinn - 1965, Page 7
Nátlúrufr. — 35. árgangur — 1. hefti — 1.-48. siða — Reykjavík, mai 1965 Jón Jónsson: Forn eldvörp í Selhrauni Ekki alllangt sunnan við Straum í Garðahreppi og skammt vestan við Kapdluhraun eru forn eldvörp. Þar hefur Vegagerð ríkisins tek- ið rauðamöl til ofaníburðar í vegi, og ])að er mest þeirri starfsemi að þakka, að hægt er nú að fullyrða að hér er um eldvörp að ræða. Ekki er mér kunnugt um, hvernig þarna leit út áður en byrjað var að taka þar efni, en svo lítið her á þeim liluta gíganna, sem enn er eftir óhreyfður, að líklegt má teljast, að þeim hefði alls ekki verið veitt eftirtekt, liefði þarna ekki verið grafið með stórvirkum tækj- um. Nú er þarna umrót mikið og ýmislegt fróðlegt að sjá. Gígir þeir, sem hér er um að ræða, eru á línu með stefnu NA—SV, eins og gígaraðir á Reykjanesi yfirleitt eru. Yngri hraun hylja nú þetta svæði nær alveg, og hafa þau fært hina fornu gígaröð að mestu í kaf. Þau hraun eru komin sunnan að af svæðinu milli Sveifluháls og Vesturháls. Af því að yngri hraun hafa runnið yfir umhverfi gíganna, verður ekki með vissu sagt, hversu mikið hraun hefur frá þeim komið. Það er þó ljóst að eitthvað hraun hefur runnið í þessu gosi, og er það auðþekkt frá hraununum í kring. Það er peltspat-ólivín-porfyritiskt basalthraun með ólivínkrist- öllum, sem eru 1,5—2 mm í þvermál, og með einstaka allt að 3 cm stórum og allmiklu af 0,5—1 mm stórum feltspatkristöllum. Bæði stærri og minni feltspatkristallarnir virðast vera eins eða a. m. k. mjög líkir að samsetningu. Ljósbrot þeirra reyndist vera nuz 1.574, en sam- kvæmt Tröger (1959) er það An 70, en það eru mörkin milli labra- dorit og bytonit. Taldar voru steintegundir í tveim þunnsneiðum, samtals 2970 punktar. Útfrá því reyndist samansetning hraunsins vera: Plagioklas Pyroxen Olivín Ógegnsætt (opacjue) 45.4 % 36.5 % 7,3 % 10,8 %

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.