Náttúrufræðingurinn - 1965, Blaðsíða 18
12
NÁTTÚRU FRÆÐJ NGURINN
heyrðist oft kurr í dúfunum ofan úr brekkunum upp frá bænum.
Hinn 31. júlí hélt ég enn að Svínafelli til að leita að liringdúfu-
hreiðrum og þá tókst mér loks að finna eitt hreiður. Var það á
klettarák í gili austan við Svínafellsbæina, allhátt uppi í brekkun-
um. Rann svolítill lækur eftir gilinu og féll hann frarn af stalli og
myndaði smáfoss rétt við hreiðrið, sem var svo að segja alveg hulið
bak við ætihvönn.
Þegar ég nálgaðist hreiðrið sat hringdúfa í allháu birkitré skammt
frá hreiðrinu (sjá 1. mynd). Var mikill dritur el'tir dúfuna á trénu
og einnig svolítið af fiðri við rætur þess. Þegar ég kom að trénu sá ég
af tilviljun svolítinn hvítan blett í hvannstóðinu og reyndist Iiann
vera hringdúfuegg. Eggið var snjóhvítt og gljáandi, 40.0x30.1 mm
að stærð eða örlítið minna en urtandaregg. í egginu var úldinn,
nær fullþroska ungi, og við hlið þess í hreiðrinu lá dragúldinn ungi,
sem bersýnilega halði drepist rétt eftir að hann kom úr egginu. Eins
og áður var sagt var hreiðrið á klettarák og var það nær alveg hulið
af hvönn. Var það gert úr grönnum birkigreinum og ófóðrað að inn-
an. Ur berginu ofan við hreiðrið seitlaði vatn í sífellu í hreiðrið og
hefur varpið sennilega misteki/.t af þeirn sökum. Þó var búið að vera
þurrt nokkra næstu daga áður en ég kom að hreiðrinu.
í byrjun ágúst kom ég aftur að hreiðrinu og sat hringdúfa þá í
sama birkitrénu. í júlí þetta ár sáust í Svínafelli samtímis fjórar
hringdúfur saman og auk þess tvær út af fyrir sig. Seint í september
sáust lcjks fjórar hringdúfur saman ;í llugi í Svínafelli.
Þetta mun vera fyrsta hringdúfuhreiðrið, sem finnst hér á landi.
Verður fróðlegt að fylgjast með því, hvort hringdúfurnar halda áfram
að verpa í Svínafelli.
SUMMARY
Wood pigeon (Coluinba palumbus) nesting in Öræfi, SE. Iceland.
by Hálfdan Bjurnsson
'J'he wood pigeon is an irregular visitor to lccland, cliielly in spring and
autumn, but it ltas ncver been suspected to Itreed.
In Öræfi, SE. Iceland, tlie first record of a wood pigeon goes back to 1934
but since tlien the species Jias been observcd tltere in 1935, 1937, 1938, 1942, 1945,
1954, 1958, 1959, 1961, 1903 and 1964. Most of thc records are from spring and
autumn, involving one or öccasionally more ltirds. However, in 1958 one or two
birds were observed in August near the farm of Svínafell, and a bird was in thc
same area in June 1959. In June 1963 a bird was seen a lew times near the farm
oí Kvísker and on June 23 two birds were observed there. In the period June