Náttúrufræðingurinn - 1965, Blaðsíða 28
22
NÁTT0 RU FRÆÐIN G U RI N N
verndarráðs ,Llutti Joseph Hickey, prófessor við Wisconsinháskóla, eriutli: Um
áhrif meindýra- og iilRresiseiturs á fuglalíf í Bandaríkjunum.
Október. Kristján Sigvaldason: Um jarðfræði Hengilssvæðisins.
Nóvembcr: Jónas Jónsson: Um kornrækt.
Fræðsluferðir
Á sumrinu voru farnar fjórar fræðsluferðir, þrjár stuttar ferðir, sem tóku einn
dag eða hluta úr degi, og ein löng fjögra claga ferð.
Fyrsta stutta ferðin var farin sunnudaginn 31. maí um Reykjanesskaga til
jarðmyndana- og landslagsskoðunar. Ekið var Keflavikurveg og Grindavíkur-
veg að Stapafelli. Þaðan út á Reykjanes og síðan að Háleyjabungu. Þá var halcl-
ið um Grindavik, Krisuvík og Vatnsskarð lil Reykjavíkur. Þátttakeiulur voru 82,
leiðbeinendur Jón Jónsson, jarðfræðingur, og Þorleifur Einarsson.
Onnur stutta ferðin var farin sunnudaginn 14. júní tif fjörulílsskoðunar í
fjöruna í Eiðsvík milli Geldinganess og Gufuness. Þátttakendur voru 64, leið-
beinendur Sigurður Pétursson, Ingimar Óskarsson og Eyjtór Einarsson.
Langa ferðin, aðalfræðsluíerð félagsins á sumrinu, var farin til Vestmanna
cyja til alhliða náttúruskoðunar dagana 20.—23. júní. Lagt var upp í In'lum frá
Reykjavík um nónbil laugardaginn 20. júní og ckið til Þorlákshafnar, en siglt
þaðan viðstöðulaust til Eyja með Herjólfi. í Eyjum var dvalið 3 daga, en hald-
ið þaðan laust eltir miðaftann jjriðjudaginn 23. júní með Herjólfi til Þorláks-
hafnar, og síðan ckið í bílum rakleitt til Reykjavíkur og komið jrangað um
kvöldið.
í Eyjum var farið um alla Heimaey, út í Elliðaey, siglt að Bjarnarey, Suðurey,
llellisey, Brandi, Álfsey, Smáeyjum og kringum Heintaey. Ætlunin var að fara út
í Surtsey, en hætta varð við það sijkum veðurs, sem liefði getað verið betra jjessa
claga. Gist var í húsi Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja í bc/.ta yfirlæti og notið
þar framúrskarandi fyrirgreiðslu skólastjóra og húsvarðar. Þátttakendur í ferð-
inni nutu einnig ágætrar íyrirgreiðslu Sveins Guðmundssonar, en hann á mikið
steinasafn og bauð öllum jjeim, scm vildu, að koma og skoða það. Þá nutu jjátt-
takendur ekki síður góðvildar (jg lipurðar Skipaútgerðar ríkisins, sem m. ;t.
breytti áætlun Herjólfs þeirra vegna. Vélbáturinn Haraldur flutti jjátttakendur
út í Elliðaey og sigldi með jjá umhveríis eyjarnar. Þátttakendur í ferðinni voru
45, leiðbeinendur þeir Páll Stcingrímsson, kennari og listmálari í Vestinanna-
eyjunt, Sigurður Þórarinsson og Eyþór Einarsson, sem jafnframt var fararstjóri.
Þriðja stutla ferðin var farin sunnudaginn 5. júlí upp að Leirvogsá til grasa-
skoðunar. Farið var með bílum að Hrafnhólum og gengið jjaðan upp með ánni
að norðan að Tröllafossi. Þátttakendur voru 38, jjrátt fyrir leiðinda rigningar-
veður, leiðbeinendur voru Eyjjór Einarsson og Ingimar Óskarsson.
í öllum jjessum fjórum ferðum naut félagið óbrigðullar og ágætrar Jjjónustu
Guðmundar jónassonar, sem lagði til bíla í ferðirnar.
Útgáfustarfsemi
Rit félagsins, Náttúrufræðingurinn, kom út í fjórum heftum, alls 12i/j úr örk,
eða 196 bls. að stærð. Ritstjóri var dr. Sigurður Pétursson og hefur liann verið ráð-
inn ritstjóri næsta árgangs, sem verður þá 10. árgangurinn, sem liann ritstýrir,