Náttúrufræðingurinn - 1965, Blaðsíða 20
14
NÁTTÚ RUFRÆÐINGURINN
yfirborð líkamans. Sumir kirtlar hafa bæði útkirtil- og innkirtil-
starfsemi, svo sem kynkirtlar og briskirtill. Loks verða hormón til í
fjölmörgum líffærum, sem alls ekki teljast til kirtla í daglegu tali.
Mörkin milli starfsemi taugakerfis og hormónakerfis eru sums
staðar mjög óglögg. Til dæmis berast taugaboð frá einni tauga-
frumu í aðra og frá taugaendum til vöðva eða kirtla með n. k. hor-
mónum. Einnig hefur í Ijós komið, að ýmsir hlutar taugakerfisins
eru sérhæfðir til að framleiða hormón, sem berast með blóðinu
lengri eða skemmri veg. Loks stjórnar taugakerfið víða starfsemi inn-
kirtla, en innkirtlar hafa í staðinn áhrif á störf taugakerfisins.
Kinna merkastur og forvitnilegastur innkirtla er heiladingullinn.
Kirtill þessi er lítil tota, sem gengur niður úr heilanum, liðlega hálft
gramrn að þyngd í fnllorðnum manni, lítið eitt þyngri til jafnaðar
í konum en í körlum. Heiladingullinn skij^tist eftir uppruna og
gerð í tvo meginhluta: framhluta og afturhluta, ásamt litlum mið-
hluta. Framhluti og miðhluti eru úr kirtilvef og verða á fósturskeiði
til sem felling eða tota upp úr kokinu. Jafnframt vex önnur tota
niður úr heilanum, heldur aftar, og verður að afturhluta heilading-
uls. Toturnar tvær renna síðan saman í eina og hin fremri losnar frá
kokinu.
Afturhluti heiladinguls er í mjög nánum tengslum við heilann,
enda til orðinn sem sproti niður úr heilanum. Úr afturhluta heila-
dinguls hafa verið einangruð tvö hormón, mjög h'k að efnafræðilegri
gerð. Trúlegt þykir, að þessi hornuin verði ekki til í heiladinglinum
sjálfum, heldur í taugavef í heilanum ofan við heiladingulinn, í þeim
hluta heilans, sem hypothalamus kallast. Telja menn, að hormónin
berist eftir taugum niður í afturhluta heiladinguls, en dreifist þaðan
út um líkamann.
Annað hormónið hefur áhrif á þvagmyndunina í nýrunum. Það
takmarkar vatnsmagn þvagsins. Eðlileg þvagmyndun manns er að
meðaltali um hálfur annar lítri daglega, en fer vitanlega talsvert
el tir vatnsmagni fæðunnar. Ef afturhluti heiladinguls er óstarfhæfur.
marglaldast þvagmagnið og getur orðið -50—40 lítrar daglega. Með
þessu feikilega þvagmagni skolast vitanlega út úr líkamanum mikið
af söltum, sykri og öðrum efnum, enda er þetta hinn alvarlegasti
efnaskiptakvilli. í heilbrigðum manni takmarkast starfsemi aftur-
hluta heiladinguls af vatnsmagni líkamans. Ef maður drekkur mik-
ið vatn, skynjar heilinn aukið vatnsmagn blóðs og vefja og stöðvar