Náttúrufræðingurinn - 1965, Side 22
Sveiflur í kynstarfsemi kvenna orsakast af mánaðarlegum sveiflum
í framleiðslu yfirkynhormóna í heiladingli, þannig, að mismunandi
yfirkynhormón stýra mismunandi þáttum kynstarfseminnar.
Eggin þroskast í tveimur eggjastokkum í kviðarholinu. Að jafn-
aði nær aðeins eitt egg þroska á mánuði, losnar þá, berst út í kviðar-
holið og þaðan bráðlega eftir annarri tveggja eggrása niður í legið.
Ef eggið frjóvgast, verður það í eggrásinni. Þar liefst þá fósturþró-
unin. Síðan festist fóstrið í slímhimnu legsins og þróast þar allan
meðgöngutímann. Ef eggið frjóvgast ekki, endist lrin blóðríka slím-
himna legsins aðeins um hálfan mánuð eftir egglos, en fellur þá sam-
an og losnar frá leginu. Þessu fylgir blæðing, tíðir. Að tíðum loknum
þroskast ný slímhimna f leginu og nýtt egg losnar, venjulega um
hálfum mánuði eftir að tíðir hófust.
Eitt yfirhormónið frá framhluta heiladinguls stýrir þroska eggs-
ins í eggjastokknum, en síðan myndar heiladingullinn annað hor-
món, sem stýrir atburðarásinni síðari hluta tíðahringsins, ásamt
þriðja hormóninu frá Iramhluta heiladinguls, sem einnig stjórnar
þroska mjólkurkirtlanna í brjóstunum, er á meðgöngutíma líður.
Yfirkynhormónin frá framhluta heiladinguls hafa áhrif á myndun
hinna eiginlegu kvenlegu kynhormóna, sem verða til í eggjastokk-
unum, en jjessi kynhormón stýra síðan kynstarfseminni. Kynhormón-
in hafa aftur áhrif á hormónaframleiðslu heiladingulsins, svo að
tíðahringurinn stjórnast fyrir víxlverkan hormóna frá framhluta
heiladinguls og frá kynfærum.
Eiginlegar tíðir eru ekki þekktar nema með konum og kvendýrum
mannapa, en árstíðabundnar sveiflur kynstarfseminnar hjá kven-
dýrum annarra hryggdýra eru undir stjórn heiladinguls.
Hjá karlmönnum er ekki um neinar sveiflur í kynstarfsemi að
ræða, sambærilegar við tíðahring kvenna. Sömu yfirkynhormón
verða samt til í heiladingli karls og konu. Ekki er fullljóst, hvernig
yfirkynhormónin skipta með sér verkum í körlum, en þar stjórna
þau myndun sæðisfruma og hormóna í eistum.
Mörg karldýr liafa árstíðabundna kynstarfsemi, og þar eru líka
árlegar sveiflur í yfirkynhormónamyndun heiladinguls.
Fjórða hormónið úr framhluta heiladinguls stýrir starfsemi skjald-
kirtils. Skjaldkirtillinn er utan með og framan á barkanutn, við
barkakýlið neðanvert. Skjaldkirtillinn gefur frá sér hormón, sem
stýrir hraða efnaskipta líkamans. Offramleiðsla skjaldkirtilhormóns