Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1944, Page 11

Náttúrufræðingurinn - 1944, Page 11
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 65 í raun og veru er þetta engin saga. Aðeins ofurlitiö atvik Iiðinna daga — augnablik, seni gerir HCið auðugt og þess vert að þvi sé lií'að. Himbrimi gerir einhvern skaða á nytjafiskum, en ekki svo mikinn að það geli réttlætl að liann sé skotinn eða veiddur á annan liátt. Lómur er algengur, og i háttum líkur náfrænda sinum him- brimanum. Flórgoði (Sefönd) er all algengur fugl í Borgarfirði. Við Blundsvatn skipta þeir oft mörgum tugum, jafnvel 1,00—200 í hóp. Þar dvelur Iiann oft í hópum, en á öðrum stöðum er liann allt annað en félagslyndur fugl, eins og siðar mun revnt að skýra frá. A æskuheimili mínu Stafholtsey, var og er flórgoðinn nokk- urskonar heimilisfugl, ef svo má segja um alvilltan fugl. Á stóru síki rétt hjá bæninn var hann algjörlega friðhelgur, og enginn mátti styggja hann eða liæða, og var það oftasi trúlega haldið. Mjög voru þeir spakir og þóttist fólk þekkja sönux fuglana ár eftir ár. Oft gerðu þeir breiður rétt bjá bænum og mátti þá athuga líf þeirra og störf gegnum gluggana, er sneru að síkinu. Að breiðurgerðinni vinna bæði bjónin. ()g oftast kemur Jxað í hlut hóndans að draga efnið að, en konunnar hlutur er sá að gera það að öðru leyli. Hreiðrið er oft á floti, fest við sef og fergin, en stundum á smáhólmum. Hreiðrið er gert úr fergini, sefi, rótum, leir og fleiru. Hreiðurgerðin gengur ekki alltaf hljóðalaust af. Karlfuglinn er ekki alltaf sem vandaðastur i efnisvali þegar til lengdar lætur, enda þarf bann að kafa eftir því að mestu leyti niður á síkisbotn og færa konunni þáð í nefinu. En líki konunni ekki efnið, er ekki að sökum að spvrja. Úr því verða harðvitug ál'Iog og enda þau varla nema á einn veg —■ karlfuglinn verður að láta i minni jjokann og bæta ráð sitt, sækja efnið Iengra að. Þá verður konan gæflvnd aftur og raðar öllu með mestu nákvæmni. Hreiðurgérðin stendur ofl yfir 1 til 2 tíma, en verður stundum ekki lokið á einum degi. Gleðin er auðsæ að verkinu loknu, allar erjur eru glevmdar og ást og friður eru ráðandi öfl i sambúð allri, meðan vor hefir völd. — En gestrisin eru þau bjónin ekki og aðeins örsjaldan baldast við tvenn hjón á síkinu, sem þó er um 500 metra langt. Ef aðrir flórgoðar koraa, slær óðar í bardaga, sem mest er báður í kaí'i. Fiður flýtur um allt orustusvæðið og venjulega verða að-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.