Náttúrufræðingurinn - 1945, Page 3
Náffúrufræðingurinn
Ritstjóri: Dr. Sveinn Þórðarson 15. ÁRG. 3. HEFTI EFNI: íslenzkar vatnsfallategundir .... 113
Guðmundur Kjartansson: Wilhelm Conrad Röntgen 127
/ Um lifnaðarhætti ístenzka fjalla
Islenzkar rcfsins 136
vatnsfallategundir J
Lítil vatnsföll köllum vér lccki, þau, sem stærri eru, ár, og stórar
ár eru stundum nefndar fljót. Þetta er rótgróin málvenja bæði í ís-
lenzku og öðrum skyldum tungumálum, og er óþarft að amast við
henni. En jafnstór vatnsföll geta verið gerólík bæði í sjón og raun,
svo ólík, að þau verður að telja hvert til sinnar tegundar. Sumar ár
hér á landi eru tærar, aðrar gruggugar. Sumar eru nokkurn veginn
jafnar að vatnsmagni, hverju sem viðrar, aðrar margfaldast í vatna-
vöxtum. Sumar leggtir aldrei á veturna, aðrar í fyrstu frostum. Margs
fleira, sem einkennir ýmsar vatnsfallategundir, verður síðar getið
og bent á orsakir einkennanna, eftir því sem þekking mín leyfir og
ég tel leggjandi á þolinmæði góðfúss lesanda.
Frá fornu fari hafa ár hér á landi verið flokkaðar í tvennt: berg-
vötn eða bergvátnsár og jökulvötn eða jökulár. Þetta er flokkun eftir
uppruna og eðli, en án tillits til stærðar. Bergvötnunum er lialdið
við af uppsprettum úr jarðvatninu, en flest þeirra vaxa stundum
að miklum mun af aðrennsli ofanjarðar í rigningum og leysingum.
Þau eru allajafna tær nema í vatnavöxtum. Jökulvötnin koma aftur
á móti upp undan jöklum og er a. m. k. að einhverju leyti haldið við
af leysingarvatni þeirra, en það er mjög mismikið og fer einkum
eftir lofthita. Þau eru jafnan gruggug af bergsvarfi úr undirlagi
jöklanna. Vitanlega eru fjölmargar ár hér á landi blandaðar bæði
bergvatni og jökulvatni. Slíkar ár er venja að kalla jökulár, jafnvel
þótt jökulvatnið sé aðeins lítið brot af öllu vatnsmagninu, enda
nægir það til þess, að áin fái hinn alkunna skolgráa lit, sem er hið
fljótséðasta einkenni jökulvatnanna. En ef miða skal við upprunann
(þ. e. upptök árinnar), þá er einsætt, að slíkt vatnsfall er skyldara
bergvatnsá en á með eintómu jökulvatni. Af þessum ástæðum lenda
ár með mjög útþynntu jökulvatni í flokki með bergvatnsám sam-