Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1945, Blaðsíða 15

Náttúrufræðingurinn - 1945, Blaðsíða 15
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 125 Múlakvösl. Auravatn i vexti. (Ljósin.: Guðm. Kj.). frá annarri og verður ekki um þær villzt. En er neðar kemur með löngurn ám, dregur úr einkennunum, og þá einkum, er vötn ólíkrar tegundar koma sarnan. Úr þeim verða blandaðar dr. Flestar stórár hér á landi eru orðnar mjög blandaðar, er þær renna til sjávar. Svo er t. d. um Þjórsá, vatnsmestu og lengstu á landsins, Hvítá í Árnes- sýslu, Hvítá í Borgarfirði og Blöndu. Að síðustu skulu taldar nokkrar hinna kunnustu áa á Suðurlandi, austan frá Öræfum út í Ölfus, og flokkaðar samkvæmt því, sem hér segir að framan. Skeiðará og Núpsvötn á Skeiðarársandi. Jökulár (óverulega bland- aðar dragavatni), auravötn frá upptökum til ósa. Djúpá. Jökulá (lítið blönduð dragavatni). Laxá og Brúará, dragár. Brunná. Að mestu lindá, blönduð jökulvatni. Hverfisjljót. Jökulá (lítið blönduð, sennilega helzt lindavatni). Geirlandsá og all'ar aðrar ár, sem renna niður í byggð á Síðu, eru dragár, sumar nrýralækir. %

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.