Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 11
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
57
að þarna opnaðist mönnum aðgangur að geislavirkum efnum í
miklu ríkara mæli en menn höfðu áður haft, ef unnt væri að gera
skotlníðina nægilega öfluga og mikla. Varð það og eitt af fyrstu
verkum Lawrence og samverkamanna lians, að nota cyclotrontækið
til slíkra skothríða, og tókst honum að framleiða í allstórum stíl ýmis
geislavirk gerfifrumefni, sem haft hafa mikla fræðilega og hagnýta
þýðingu. Meðal annars tókst honum að gera natriumatómur í matar-
salti geislavirkar með 15 klst. „hálfæfilengd", og kallast það þá
geislasalt (radíósalt). Hefir það verið unnið í stórum stíl og verið
notað til ýmissa rannsókna og lækninga, meðal annars til þess að
fylgjast með flutningi ýmissa elnasambanda um líkama dýra og jurta,
því að auðvelt er að færa sönnur á nærveru þess, vegna geislaverk-
unarinnar, sem einföld en nákvæm tæki eru til að mæla. Sé drukkið
vatn, sem geislasalt er uppleyst í, er hægt að sýna, að innan tveggja
mínútna er nokkur hluti þess konrinn út í blóðið og hefir borizt út
i fjarlægustu hluta líkamans.
IV. Hugmyndir um kjarnann.
Enda þótt segja verði, að rannsóknir þær, sem skýrt hefir verið frá
hér að franran séu mjög grófar miðað við smæð viðfangsefnanna, þá
hafa þær þó getað fært oss ýmsan fróðleik um atómurnar, sem mik-
ilsvert er að eiga. Þær hafa leitt í ljós, að atómurnar eru ekki ódeilan-
legar, heldur sanrsettar af þungunr kjörnum, sem fisléttar elektrónur
þyrlast í kringum eftir hringlaga eða sporöskjulaga brautum. Enn
fremur liafa þær leitt í ljós, að kjarnarnir eru samsettir og að úr þeinr
geta klofnað, ýnrist af sjálfsdáðum, eða fyrir ytri tilverknað, ýmsar
agnir, svo sem prótónur, neutrónur, elektrónur, pósítrónur og
gammageislar. Prótónur, elektrónur og gammageislar hafa verið
nefnd áður og þurfa því ekki skýringa við. Pósítrónur og neutrónur
þarf að skilgreina hvað eru. Pósítrónur eru rafmagnaðar agnir, sem
eru mjög svipaðar elektrónum að því frátöldu, að pósítrónur hafa
viðlæga hleðslu en elektrónur frádræga. Á táknmáli eru þær tákn-
aðar með r ° e. Neutrónur eru agnir með sarna efnismagni og pró-
tónur, en eru óhlaðnar, á táknmáli er þeinr lýst með tákninu 0 n. —
Er þá eftir að gera sér grein fyrir, hvernig atómakjarnarnir eru
gerðir.
Svo virðist, sem ekki þurfi að gera ráð fyrir nema tvenns konar
frumögnum innan kjarnans, en það eru prótónur og neutrónur. Sé
gert ráð fyrir, að þessu sé svo varið, er fyrsta spurningin senr rís, sú,
hvaða öfl það séu, sem halda kjarnanum saman. Sé til dæmis litið á