Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1946, Síða 24

Náttúrufræðingurinn - 1946, Síða 24
70 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN hlaði í Hanford í Washington-fylki, eyðast ekki nema fáein grömm af U-238 og U-2‘55 á sólarhring. Síðan verður að vinna þessi fáu grömm plutóníums úr um það bil 1000 tonnum af úraníumi. Af þessum tölum er auðsætt að eins og sakir standa muni orkuvinnsla úr hlöðum, senr þeim, sem hér hefir verið sagt frá, ekki geta keppt við kol eða annað eldsneyti til orkuvinnslu. VII. Niðurlagsorð. Skömmu eftir að kunngt var orðið um liina örlagaríku uppgötvun Þjóðverjanna Hahn og Strassmann seint á árinu 1938, lagiðst hjúpur leyndarinnar yfir allar atómrannsóknir stórþjóðanna, en þær einar munu liafa haft fjárhagslegt bolmagn til þess að stunda þær í stórum stíl (Bandaríkin ein kostuðu til rannsókna og framkvæmda vegna atómsprengjanna 2000 milljónum dollara). Var jrað livort tveggja í senn, hið viðsjála ástand í heiminum og hinir geigvænlegu mögu- leikar, sem menn töldu sig grilla í, sem gerðti það að verkum, að í stað samstarfs og samhjálpar á þessu sviði vísindanna hófst harðsnú- in keppni, sem ekkert var til sparað að vinna. Árangur þeirra átaka var atómsprengjan í þeirri mynd, sem hún birtist í viðureign Banda- ríkjamanna við Japani, þó má telja víst, að mörgu sé enn haldið leyndu og kapphlaupinu er enn haldið áfram. í undirbúningi eru í sumar stórfelldar tilraunir með atómsprengjur á Kyrrahafi, bæði á sjó og landi. Öllum eðlisfræðingum ber þó sarnan um að til lang- frama geti hvorki atómsprengjur né annað á því sviði verið einka- leyndarmál einstakra þjóða og ekki að vita hvenær ein þjóðin fari fram úr annarri í þeim efnum, auk þess, sem ætla má að þekking rnanna í dag sé næsta frumstæð miðað við Jiað, sem síðar verður. Eru því háværar raddir uppi um það, að setja beri allar slíkar rannsóknir undir strangt eftirlit og taka beri upp hið fyrra samstarf visinda- manna og verkfræðinga um allan heim, er það trú margra, að með því móti verði friðurinn í heiminum bezt tryggður. Einnig hefir sú skoðun gert vart við sig, að atómsprengjur, sem slíkar, séu svo ægileg vopn, að þjóðirnar muni ekki áræða að nota þær til hernaðar, en þar má benda á, að það sama áleit Alfred Nobel, er hann fann upp dyna- mítið, en reyndist ekki sannspár eins og raun ber vitni. Margir vísindamenn telja að megináherzluna beri að leggja á hag- nýtingu kjarnorkunnar til friðsamlegra starfa, en lausn þess vanda virðist enn eiga langt í land á samsvarandi hátt og langur tími leið frá því að maðurinn lærði að kveikja eld og þar til honum lærðist að

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.