Náttúrufræðingurinn - 1946, Side 45
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
91
vatn á einum stað. IJó liygg ég, að vatnsmagn sinnra lauganna geti
verið 2—4 sek. litr. Samanlagt vatnsmagn hlýtur að \ era mikið, iyrst
það nægir til að gera alla ána um 35° C heita.
Er við liðfðum skoðað laugasvæðið, fengum við okkur bað í ánni
neðan við laugarnar. Minnist ég þess ekki að hafa notið þægilegra
Iraðs. Hitinn var svo hæfilegur að enginn viðbrigði fundust, er við
dýfðum okkur í það. Straumurinn var allmikill, svo við urðum að
velja okkur góða viðspyrnu og láum síðan um hálfa klukkustund í
baðinu og léturn straumkastið lemja okkur. Hygg ég að ekkert nudd
jafnist á við slíkt.
Norður með ánni, er rennur norður frá Hveragilinu, eru nokkrar
uppsprettur ilvolgar.
Frá Hveragili héldum við norðaustur yfir Brúarjökul í Sauðár-
og Kringilsárrana. Á þessari leið sáum við hvarvetna glögg merki
þess, að Brúarjökull fer hraðminnkandi. Við upptök Kreppu,
skammt austur af Kverkfjöllum, voru 1941 háir jökulhamrar. Nú
hefur jökulbrúnin þynnst svo, að þessir hamrar eru horfnir. Jökull-
inn hefur líka þokast aftur á bak á þessum slóðum.
Ofan við Kverkárnesið stendur fjallsöxl mikil fyrir jöklinum. Á
bak við þessa öxl sýna nýjustu uppdrættir jökullón rnikið. Það er
áreiðanlega ekki lengur til. Hefur tæmst norður í Kverká. Jökull-
inn hefur lækkað mjög mikið þarna bak við öxlina, en mikið af
jökulruðningi er hátt upp í öxlinni langt fyrir ofan núverandi yfir-
borð jökulsins.
Nú fellur ekkert jökulvatn norður til Sauðár, en lnin var lengi
mikið jökulvatn. Af rýrnun jökulsins hefur það leitt, að vatn það
er áður féll til Sauðár, deilist nú til Kverkár og Kringilsár. Vel getur
svo farið, að Kringilsá, sem að undanförnu hefur verið mikið og illt
vatnsfall. fari brátt þverrandi, ef jökullinn heklur áfram að rýrna og
Jökulsá á Brú og Kverká verði aðalárnar, sem koma þarna undan
norðaustanbrún jökulsins.
í Sauðárrananum sunnanverðum, sé/.t Ijóslega, hvernig hreifing
jökulsins hefur verið síðustu áratugina, því hver ruðningsaldan
tekur við af annarri. Láta mun nærri, að jökullinn hafi hörfað þarna
um 8 km. síðustu 50 árin og mest síðustu áratugina. Brúarjökull
er ákaflega hallalítill langt suður á jökul og Iialdi hann áfram að
rýrna næstu áratugina eins ört og nú á sér stað, má búast þarna við
mjög miklum breytingum.
í grein þessari hefi ég vikið lítið eitt að því markverðasta er ég
sá í Kverkfjallaferð minni í sumar, en ekki hirt að rekja ferðina
nánar. Ég vil þó geta þess, að við félagir fórum sjaldfarna leið til