Náttúrufræðingurinn - 1951, Qupperneq 4
NÁTTÚRUF R/E ÐINGURINN
146
efla íslenzk náttúruvísindi, glæða áhuga og auka þekkingu manna á
öllu, ersnertir náttúrufræði".
Eftir að Náttúrufræðifélagið tók við útgáfu Náttúrufræðingsins
hefur það nokkrum sinnum komið til tals, hvort ekki væri rétt að
birta skýrslu íélagsins í tímaritinu, í stað þess að gefa liana út sér í
lagi. Ekki hefur þetta þó ennþá náð fram að ganga, og hefur aðalá-
stæðan verið sú, að skýrslan þótti taka of rnikið rúm í tímaritinu, þar
sem aðeins fáir af kaupendum Náttúrufræðingsins væru meðlimir í
Náttúrufræðifélaginu. F.n nú eru þessar aðstæður mjög breyttar. Með
afhendingu Náttúrugripasafnsins til ríkisins hefur Náttúrufræðifé-
lagið ekkert að gera með skýrslu safnsins, en liún var áður langmest-
ur hluti félagsskýrslunnár. Frá byrjun ársins 1947 verður því eina
efnið í skýrslu félagsins stuttorð frásögn af aðalfundi félagsins, reikn-
ingarþess og svo lélagatal, sem birt yrði öðru hverju. bað kemur því
nú enn á ný til álita, hvort ekki sé rétt að hætta að gefa út sérstak-
lega skýrslu Hins íslenzka náttúrufræðifélags, og birta heldur efni
liennar í Náttúrufræðingnum.
En hér kemur líka annað atriði til greina. Hvers vegna ekki að
gera Náttúrufræðinginn að félagsriti Náttúrufræðifélagsins, á sama
hátt og Skírnir er félagsrit Bókmenntalélagsins. Þar sem útgáfa Nátt-
úrufræðingsins er orðin eiit aðalhlutverk Náttúrufræðifélagsins, þá
er ekki ósanngjarnt að ætla/t til þess af meðlimum félagsins, að þeir
séu allir kaupendur að tímaritinu. Myndu þá allir félagsmenn fá rit-
ið upp í árstillag sitt, sem með tilliti til þessa yrði auðvitað hækkað
verulega frá því, sem nú er. Hver sem eftirleiðis gerðist lélagi í Hinu
íslenzka náttúrufræðifélagi yrði þá um leið kaupandi að Náttúru-
fræðingnum. Ekki yrði þess þó krafizt af hinum ljölmörgu núver-
andi kaupendum Náttúrufræðingsins, sem ekki eru í Náttúrufræði-
félaginu, að þeir gengu í það. Þeim væri það auðvitað velkomið og
það væri vel þegið, en þeim ætti að vera frjálst að standa utan við fé-
lagsskapinn, ef þeir vildu það heldur.
Báðar þær ráðstafanir, sem hér hafa verið nefndar: birting skýrslu
Náttúrufræðilélagsins í Náttúrufræðingnum og áskrift allra með-
lima félagsins að ritinu, væri til mikils hagnaðar og hagræðis bæði
fyrir félagið og ritið. Verða þessi mál væntanlega tekin til umræðu
ogafgreiðslu á aðalfundi Hins íslenzka náttúrufræðifélags, sem hald-
inn verður í febrúar n.k.
Sigurður Pétursson.