Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1951, Síða 5

Náttúrufræðingurinn - 1951, Síða 5
Hermann Einarsson: / Atan og síldin Reyndum síldarsjómönnum liefur lengi verið ljóst, að samband er milli átumagnsins í sjónum og síldartorfanna. Snjallir skipstjórar sjá mun á átusjó og átulitlum eða átulausum sjó. Er mér nær að lialda, að sá hæfileiki geri oft gæfumuninn, en hann hefur reynzt furðu mikill hin síðari ár, þegar lítið síldarmagn hefur gengið á norðurlandsmiðin. Vísindamenn hafa með mælingum staðfest þessa reyn/.lu sjómanna. Kunnar eru rannsóknir Skota á þessu sviði, en það eru um 20 ár síð- an próf. A. C. Hardy, sem þá var prófessor í Hull, smíðaði áhald, til að sía átuna úr sjónum. Sko/.kir reknetabátar hafa notað aðferð þessa með nokkrum árangri. Hér við land gerði nrag. Arni Friðriksson talsvert víðtækar atliug- anir með þessu álialdi árin 1938—1941, einkum árið 1939. Átumæl- irinn er dreginn eftir skipi á fullri ferð ákveðna vegalengd, og síðan er átan nræld eða talin. Bæði þessar athuganir, og eins fjölmargar mælingar á átumagni í síldargöngum, sem mag. Árni hefur gert um langa árabil, sýna, að átan myndar hámörk á vissum svæðum, að þessi hámörk færast til með straumum, og að mesta síldarmagnið safnast á átusvæðin. Það liggur í hlutarins eðli, að nákvæm vitneskja um legu átusvæð- anna væru síldarsjómönnum kærkomin hjálp við síldarleitina, og starfsemi Fiskideildar hefur því beinzt að því að fullkomna aðferðina við kortlagningu átusvæðanna. Þó höfum við ekki álitið tímabært að kunngera árangur athugananna jafnóðum, fyrr en fnll vissa væri fengin fyrir því, að Jrær gæfu viðhlítandi mynd af ástandinu, og séð yrði með vissu, að náið samband væri milli kortlagðra svæða og síld- armagnsins. Sumir hafa misskilið þessa hlédrægni, sem ég álít sjálf- sagða, meðan rannsóknir eru á byrjunarstigi. Svifrannsóknir síðari ára hafa allar sýnt, að átan hefur eigin hreyf-

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.