Náttúrufræðingurinn - 1951, Page 7
ÁTAN O G SÍLDIN
1 13
Rétt er að taka það fram, að svifmælir Hardy’s var einkum gerður
með það fyrir augum, að sjómenn mældu sjálfir átumagnið og leit-
uðu uppi átusvæðin, en sérstök gerð lians hefur þó verið notuð til
víðtækra rannsókna við Skotlandsstrendur og í Norðursjó. Vafasamt
er, hvort sjómenn geta komið slíkunt mælingum við, svo að fullu
gagni komi. Sjaldan getur verið um kerfisbundna leit að ræða. Ég
hef alltaf álitið lieppilegra, að sérstakt skip annist slíkar mælingar,
ef reynslan sýnir að kortlagning átusvæðanna er möguleg, og síðan
verði fiskiflotanum birtur árangur mælinganna.
í sambandi við rannsóknaraðferð þá, sem við tókum upp, var eitt
atriði sérstaklega tvísýnt, en það var, hvort átan væri svo jafndreifð
að lóðrétt tog með litlum háf gæfu rétta mynd af ástandinu á stóru
svæði. Þetta hefur nú verið prófað hér síðastliðið sumar, og eins hef-
ur ýtarlegri athugun á þessu verið gerð á hafrannsóknarstöðinni í
Millport á Clydefirði í Skotlandi. Að vísu getur einstaka sinnum ver-
ið um verulegar skekkjur að ræða, en vfirleitt sýna mælingarnar
ástandið á stóru svæði, svo jafndreifð er átan að jafnaði. Þar sem átan
safnast í þétta flekki eru mælingarnar hins vegar mjög ónákvæmar,
og er sama hvaða aðferð er viðhöfð á slíkum svæðum.
Égætla nú að gera að umtalsefni árangur athugánanna, sem gerðar
hafa verið á vegum Fiskideildarinnar hin síðari ár. Hefur mag. Þór
Guðjónsson tekið mælingar þessar saman og teiknað flest kort sem
fylgja þessu máli.
Atumagnið sumarið ! 94H
Fyrstu kerfisbundnu rannsóknirnar voru gerðar á norðurlands-
miðunum sumarið 1948, en þá rannsökuðum við svæðið tvisvar, fvrri
hluta júlí og fyrri hluta ágúst. Jafnframt hafði ég útbýtt meðal skip-
stjóra eyðublöðum fyrir aflaskýrslur og var á grundvelli þeirra hægt
að sýna hvar veiðin fór fram á rannsóknartímabilinu. Átuna mæld-
um við í ml., og sýna tvistrikuð svtcði meira en 20 ml. átu, skástrikuð
svœði 10—20 ml. en óstrikuð svceði milli athuganastöðva (sem sýndar
eru með svörtum deplum) frá 1—10 ml. Opnir hri>tgir sýna átulaus
svceði (minna en 1 ml.).
Fyrri hluta júlímánaðar (6/7—18/7) (2. mynd) er langmest af átu
í námunda við Skagagrunn, eins og sést á efra kortinu, en hið neðra
sýnir að þar var líka talsverð veiði. Verið getur að áta þessi hafi síðar
færst nær landi, og skapað þá veiði, sem fékkst út af Haganesvík.