Náttúrufræðingurinn - 1951, Side 9
ÁTAN OG SÍLDIN
151
3. mytul. a. ÁtusvicOi ri noiðurlamtsmiöunum uin iniðjan ágiíst 1948. — b. StaÖir
þar sem sildlJeiÖiskip fengu afla.
gerð voru að rannsóknarefni. Þó er alveg tvímælalaust að af þessu
má draga þá ályktun, að hccgt. er með þéttari athuganaröð að kort-
leggja norðurlandssvœðið með tilliti til átu, og finna. þannig likleg-
ustu sildarsvæðin, og útiloka önnur, vegna átuleysis. Og slíkar athug-
anir þarf að endurtaka á viku fresti allt sumarið, þ. e. hafa sérstakt
skip til athugananna, eins og ég benti strax á veturinn 1948, þegar ég
gerði mælingar þessar fyrst að umtalsefni á opinberum vettvangi.
Átumagnið sumarið 1949
Sumarið 1949 var átan ;í norðurlandsmiðum líka mæld tvisvar, og
al upplýsingum frá Síldarverksmiðjum ríkisins má ráða nokkuð um
aflamagn á svæðunum, nokkurn veginn samtímis því að rannsókn
var gerð.
Seinni hluta júlí (14/7—5/8) fundust tvö átuhámörk, annað á