Náttúrufræðingurinn - 1951, Qupperneq 14
156
NÁTT ÚRU FRÆÐIN GIJ RIN N
(sjá 8. mynd). Annað svæðið lá djupt undan Reykjanesi, og náði angi
af því alla leið inn í Kolluál. Yfirleitt var mikil áta á öllu djúpsvæð-
inu út af Faxaflóa, og var átuhámarkið myndað af hreinni rauðátu.
Hitt svæðið var norður og austur af Strandagrunni og náði inn á
Húnaflóa. Ennlremur var gríðarlega mikil rauðáta djúpt undan
Siglufirði, en átulaust að kalla innan við línu frá utanverðu Skaga-
grunni og til Grímseyjar.
Milli þessara átusvæða varð alls staðar lítillar átu vart, nema í
námunda við ísröndina, en þar fannst talsvert af pólsævarátu (Cal-
anus hyperboreus).
Á austursvæðinu lá átubelti djúpt undan Langanesi og Melrakka-
sléttu, og má vel vera, að þetta átubelti liafi staðið í sambandi við
átuhámarkið djúpt norður af Siglufirði.
Hafið milli íslands og Jan Mayen var annars átulaust, nema ein-
staka átublettir fundust í hlýja sjónum handan við meginflaum
Austur-íslandsstraumsins. Kalda tungan virtist hins vegar alveg átu-
laus.
Til sannindamerkis um það, hve náið samband er milli síldarinn-
ar og átusvæðanna, skulu nú athuganir skipstjóra gerðar að umtals-
efni.
A thuganir jiskiskipa
Ástæða er til að nefna í sérstökum kafla í grein þessari athuganir
ýmissa fiskiskipa varðandi vaðandi síld. Þrennt gerir það að verkum,
að upplýsingar þessar eru fyllri en títt var á undanförnum árum,
þ. e.:
1. Hvalveiðiskipin hafa leitað dýpra en undanfarin ár og sérstak-
lega áhugasamur skipstjóri (Agnar Guðmundsson) er á einu þeirra.
2. Karfaveiðar hafa farið mjög í vöxt, og sækja togarar á þeim
veiðum einnig á djúpmið.
3. Lúðuveiðar á djúpmiðum voru óvenjulega mikið stundaðar.
Það er eftirtektarvert, að einkum eftir að veiðar á djúpmiðum
hefjast fyrir alvöru, byrja fregnir um síldartorfur að tíðkast. Eins og
athuganir okkar sýna, virðast alveg sérstaklega hagstæð átuskilyrði á
kanti landgrunnsins, en slík hafsvæði höfum við ennþá rannsakað
alltof lítið, og er það einkum því að kenna, hve léleg skip við höfum
haft til afnota, þangað til í fyrra.
Upplýsingar fiskiskipa geta, eins og gefur að skilja, orðið fiski-