Náttúrufræðingurinn - 1951, Qupperneq 28
170
NÁT T r R U F R/E ÐIN G U R1N N
C. E og K er það aii.ur á móti vitað, að þau eru í sumum frumum, en
ekki öllum. E-vítamínið er útbreiddast í þessum flokki, og stendur
það að þessu leyti næst B-vítamínunum. I>að má nú telja fullvíst, að
B-vítamínin séu ómissandi öllu lifandi frymi. Það er því ekki að
undra, þó að skortur á einu eða fleirum þeirra geti haft alvarlegar
afleiðingar fyrir líf og lieilsu ltæði manna og dýra.
Um mörg B-vítamínin er það upplýst, að þau eru hfuti af þýðing-
armiklum gerhvötum (enzymum), sem í frumunum starfa, t. d. önd-
unargerhvötunum. Er þá gerhvatinn samsettur að öðrum þætti af
eggjahvítuefni (proteini), en að hinum af efnasambandi (coenzymi)
gerðu af tveim eða fleirum efnurn, og er eitt þeirra B-vítamín. Tök-
um sent dæmi gerlivatann carboxylase, sem klýfur própanonsýru í
koldíoxyd og acetaldehyd (CH, • CO • COOH = COo-þCH3 • CHÖ).
Hann er samsettur úr eggjahvítuefni annars vegar og sambandi af
fosfórsýru og thiamíni hins vegar. Verði nú skortur á thiamíni í
líkamanum, getur þessi gerhvati ekki myndazt, og þá getur própan-
onsýran ekki klolnað og safnast því fyrir. Eitt einkenni thiamínskorts
er líka einmitt Jtað, að magn própanonsýrunnar í blóðinu verður
óeðlilega mikið. Sýnir Jretta dænti greinilega, hvernig B-vítamín
geta verkað á efnabreytingarnar í líkamanum og hvernig þau geta
verið ómissandi þáttur í starfsemi frumanna.
Það má segja um B-vítamínin, að jrau, öðrum efnurn fremur, haldi
líkamanum í vinnufæru ástandi. Verkanir Jreirra eru nátengdar starf-
semi lokuðu kirtlanna og taugakerfisins.
Sjúkdómar af völdum skorts á B-vítamínum lýsa sér með ýmsu
móti. Mest áberandi eru venjulega truflanir á taugakerfi, æðakerfi og
meltingarfærum, auk alls konar bletta, útbrota, bólgu og sára á hör-
undi. Skortur á thiamíni orsakar farmannalömun eða beri-beri, sem
einkum lýsir sér í truflunum á æðakerfi og taugakerfi og hefur síðan
lamanir í för með sér. Er þetta ennþá algengur sjúkdómur í Austur-
löndum. Vöntun á riboflavíni lýsir sér oft með bólgu og smáfleiðr-
um í munni og 'nefi. Af skorti á nicotinsýru leiðir sjúkdóm, sem
nefndur er pellagra, eða maísveiki, og ennjtá er talsvert útbreiddur.
Lýsir hann sér með bólgu í hörundi, meltingartruflunum og stund-
um jafnvel sem geðbilun. Blóðleysi stafar oft af skorti á B-vítamín-
um. Mergruni, sem er alvarleg tegund blóðleysis, stafar t. d. af skorti
á vítamíni Bj 2■ Skortur á öðrum B-vítamínum hefur ekki lýst sér
beinlínis sem ákveðnir sjúkdómar á mönnum, en aftur á móti komið
greinilega fram sem sjúkdóms- og vanjrroskaeinkenni á ýmsum dýr-