Náttúrufræðingurinn - 1951, Síða 37
Nils Gustav Hörner
MinningarorS
Þegar sú sorgarfregn barst
út, að Nils Gustav Hörner,
dósent í jarðfræði við háskól-
ann í Uppsölum, liefði látizt
aðfaranótt hins 22. nóv. s.l.,
kom hún áreiðanlega flest-
um mjög á óvart. Hann var
enn þá á bezta aldri og hafði
yfirleitt verið heilsuhraust-
ur. Banamein hans var
hjartabilun. — Með N. G.
Hörner er fallinn í valinn
einn af fremstu jarðfræðing-
um Svía og jafnframt einn
hinn mesti áhugamaður um
allt það, er að kennslu í nátt-
úrufræðum lýtur. —
Nils Gustav Hörner var
Nils Gustav Hömer: •' fæddur í Tunadal í Medel-
pad í Norður-Svíþjóð 23. maí
1896, en kom til Uppsala þegar á barnsaldri og ólst þar upp. Þar
stundaði hann nám, fyrst við menntaskóla og síðar við háskólann.
Hann hlaut doktorsnafnbót 1927, og heitir doktorsritgerð hans Bratt-
forsheden. Ett vármlándskt randdeltekomplex och dess dyner (S. G.
U. Ársbok 1926, Stockholm 1927). Dósent í jarðfræði varð hann við
Uppsalaháskóla 1932. Formaður kvarterdeildarinnar við sanra há-
skóla varð hann 1947.
Meðal jarðfræðinga og annarra þeirra, er við skyld fræði fást, var