Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1951, Page 39

Náttúrufræðingurinn - 1951, Page 39
Nll.S GUSTAV HORNER 181 Munurinn er aðeins sá, að sveiflurnar hér taka yfir tugi þúsunda ára. — Náskyldar þessu eru hinar alkunnu breytingar á ýmsum jökulám á íslandi, einkum í Skaftafellssýslum. Sven Hedin hafði kringum aldamótin síðustu komið fram með þá kenningu, sem hér hefur verið drepið á, og sagt fyrir, að Tarim- fljótið — og með því Lop-Nor — mundi fyrr eða síðar færa sig um set. Þessi spádómur rættist 1921, og það var til þess að rannsaka þessar breytingar og kortleggja liið nýja vatn, sem N. G. Hörner tók sér á hendur þá ferð, sem áður greinir. Eyðimerkurferðin tók þá félaga hálfan mánuð, og allan þann tíma höfðu þeir ekki annað vatn en það, sem þeir fluttu með sér. Þrátt fyrir hinar erfiðustu aðstæður tc')kst N. G. Hörner að gera kort af vatninu og ýmsar mikilsverðar athuganir umhverfis það. — Frá þessari ferð Itefur N. G. Hörner skýrt í bók sinni „Resa till Lop“ (Nordstedt k: Söner, Stockholm 1936). Bókin er einkar skemmtilega skrifuð og gefur góða hugmynd um landið og þá erliðleika, sem verða á vegi ferðamannsins, en einnig gefur bókin gc'tða hugmynd um höfundinn sjálfan. Auk rita þeirra ,er hér hafa verið nefnd, hefur N. G. Hörner skrifað yfir 30 visindalegar ritgerðir, sem hafa birzt víðs vegar á prenti. Jafnframt starli sínu sem háskólakennari hafði N. G. Hörner á hendi víðtækar rannsóknir á kvarter-jarðmyndunum víðs vegar í Sví- þjóð, þó einkum í grennd við Uppsali. Sem kennari var hann frábær. Áliugi hans og alúð við það starf var með afbrigðum, og hann reyndi ævinlega að koma á endurbótum, sem miðuðu að því að vekja áhuga nemandans og að gera þeim námið léttara og hagnýtara. Starf lians á því sviði er brautryðjendastarf. Af bréfi, er hann reit skömmu fyrir dauða sinn, er ljóst, að hann taldi þetta eitt af mikilvægustu störfum sínurn. Hjálpfýsi lians voru engin takmörk sett, og hið þrönga vinnu- herbergi lians á jarðfræðistofnuninni stóð ávallt opið þeim, sent til hans leituðu ráða og bendinga, og þeir voru margir. Aldrei hafði hann svo annríkt, að hann gæfi sér ekki tíma til að hlnsta á byrjand- ann og gefa honurn ráð og leiðbeiningar. Vinátta hans var fáorð og traust. Til íslands kom N. G. Hörner sumarið 1948 sem þátttakandi í kynnislör þeirri, er Hans Allunann og Sigurður Þórarinsson geng- ust fyrir. Hann minntist þeirrar ferðar jafnan síðan með gleði og taldi hana vera eina þá lærdómsríkustu og skemmtilegustu, er liann hefði farið. Nokkrar athuganir gerði hann og í íslandsferð sinni, meðal annars á leirlögunum Irá hinum lorna botni Hagavatns. Hann

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.