Náttúrufræðingurinn - 1951, Qupperneq 42
184
NÁTTÚRUFRÆF) I N G U RINN
liafði liaft nóg að bíta og brenna það sem af var vetrarins. Við enn nánari leit fann
cg tvær aðrar sams konar, lifandi köngulær, allljarri hver annarri, og virtust þær einn-
ig í góðu ásigkomulagi. Dauðti köngulærnar, sem þarna voru á víð og dreif, skiptu
vafalaust mörgum tugtim, og er það ætlun mín, að sú liafi verið ástæðan fyrir tortím-
mgu þeirra, að hinar stærri og stcrkari hafi stöðugt drepið þær minnimáttar og etið,
unz einungis þessar þrjár áðurnefndu, eð'a ef til vill fáeinar fleiri, voru eftir. — Það cr
alkunnugt, að köngulærnar eru grimmúðugar mjög að eðlisfari. Og þótt flugur og
fiðrildi séu þeirra aðal fteða, munu þær óefað gæða sér á ýmsum smádýrum öðrum,
en þegar verulega tekur að þrengjast í búi hjá þeim, á haustin og veturna, inunu þa-r
miskunnarlaust drcpa hver aðra sér til matar. Framanskráð alvik hendir a. m. k. til
þess, að svo sé um húsaköngulærnar.
Að lokum skal þess getið, að ég hef oft áður séð svipaðar leifar af köngulóm og þær,
sem hér um ræðir, en altlrei í jafn stórum stíl.
Eyþór Erlendsson.
Grænalón
(Sfðastliðið haust varð hlaup úr Grænalóni, sem braust fram í Súlu. Slík hlaup liafa
áður gerzt mcð fjögurra ára millibili, en nú voru aðeins tvö ár liðin frá síðasta hlaupi
(sjá Náttúrufræðinginn 3. h. 1950). Sigurjón Rist mælingamaður átti þess kost að fylgj-
ast með aðdraganda hlaupsins og vegsummerkjum meðan á því stóð og hefur hann
góðfúslcga látið Náttúrufræðingnum í té eftirfarandi grcinargerð, uin þrjár ferðir cr
hann fór til Grænalóns. — Ritstj.).
Fyrsta ferð 20. apríl 1951
hegar Valnajökulsleiðangur Jóns Eyþórssonar var við þykktarmælingar á Skeiðarár-
jökli 20. apríl s.l. skrapp ég á skíðiim að Grænalóni og ma ldi yfirhorð lagíssins inn við
fastan punkt (varða á klettasnös). Þá var ljóst að ckki gat hækkað mikið í lóninu, áður
en þaö lilypi, því að jökulþröskuldurinn við siiðaustur hornið var aðeins uin 30 m yfir
lagíssbreiðuna.
Onnur ferð 2. september 1951
Eyjólfur Hannesson á Núpsstað fylgdi mér á hestum að Grænalóni. Farið var auslut
fyrir Lómagnúp, inn aura og norðiir Eystrafjall. Ef hcrforingjaráðskonið fblað 77) ei
Þverskurður af hakka Cnrnalóns, 50 in vestan við Núpsárfarveg. — Þverskurðarstefnan
er norð-norð vest mcelt frá /■’. M. — (Fastmerki sjá leikn.).