Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1952, Blaðsíða 8

Náttúrufræðingurinn - 1952, Blaðsíða 8
118 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN á vorin, en gi'jót, sem losni úr gígveggjunum, velti niður eftir þessari fönn niður í miðjan gígbotninn og hafi það hlaðið upp keiluna, sem sé að líkindum enn að hækka. Hrygginn suður úr keilunni telur hann myndast meðan skaflinn sé að eyðast. Þessa skoðun Gross- manns aðhyllist Ólafur Jónsson í riti sínu Ódáðahraun (annað bindi, bls. 175-176). Austurríkismaðurinn Erich Zugmayer gekk á Hverfjall sumarið 1902, ásamt bróður sínum, og hefur liann skrifað fremur greinargóða lýsingu á fjallinu. Hann telur það rnyndað í einu sprengigosi, og álítur að e. t. v. sé innri keilan yngri, en geti þó verið rnynduð í lok þess goss, er myndaði sjálft fjallið (Eine Reise durch Island, bls. 122 -124). Tékkinn K. Schneider, sá er fyrr var getið, fór um Mývatnssveit 1905, og er sá fyrsti, sem mælir fjallið nokkuð nákvæmlega, og er þverskurðarmynd hans af fjallinu að finna í mörgum kennslubók- um. Mældist honum hæð fjallsins 155 m, en þvermál gígsins frá N—S 1085 m. Fjallið telur hann sömu gerðar og Skútustaðagígi og vera hlaðið upp úr blökkum basalts og túffs (Beitráge zur physikalischen Geographie Islands, bls. 6—7). Þetta sumar og næstu sumur ferðuðust ýmsir Þjóðverjar um Mý- vatnssvæðið og skrifuðu um Hverfjall. Eru sumar þessara lýsinga næsta fjálgar og lítið á þeim að græða, s. s. lýsingar H. Erkes’s og C. Kúchler’s (Wústenritte und Vulkanbesteigungen, bls. 216—221). Meira er að græða á lýsingu eldfjallafræðinganna Knebels og Recks. W. v. Knebel skoðaði Hverfjall 10. ág. 1905. Hann telur Hverfjall vera risavaxinn sprengigíg, en mótmælir þeirri staðhæfingu Thor- oddsens, að gosmölin samanstandi af hraunmolum, en telur hana vera brot úr undirliggjandi basalti og túffi og segir hvergi sjást minnsta vott þess, að hraun hafi kornið upp í gosinu (Studien in Is- land, bls. 16—17). Hans Reck, sem skoðaði Hverfjall, ásamt Inu von Grumbkow, 9. ág. 1908 (ísafold. Reisebilder aus Island, bls. 117) tel- ur fjallið vera að mestu úr grunnbergi, en blandað gostúffi (Island, bls. 143). Reck telur Hverfjall vera sömu gerðar og Hrossaborg og telur bæði þessi fjöll vera „Erhebungskrater“, þ. e. a. s. mynduð við það, að jarðlögin hafi spennzt upp, þar til er þau brustu í miðju og lofttegundir þær, sem höfðu lyft þeim, fengu útrás, og sé það því hin upprunalega lagskipting undirlagsins, sem sjá má í gígveggjunum. Reck tekur hér upp kenningu landa síns, hins fræga jarðfræðings Leopolds v. Buch, sem setti fram skoðunina um „Erhebungskrater“

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.