Náttúrufræðingurinn - 1952, Blaðsíða 20
SigurSur Pétursson:
Sólarorkan og þörungarnir
Það virðist í fljótu bragði heldur ósennilegt, að lítt áberandi
plöntur, eins og þörungarnir, geti orðið mikilvægt eldsneyti og orku-
gjafi. Þetta er þó engin fjarstæða, og hafa þegar verið gerðar merkar
tilraunir, sem bent geta í þessa átt. Ekki mundi samt slíkt eldsneyti
vera samkeppnisfært við kol og olíu, eins og verð á þeim vörum er
nú. En kol og olía unnin úr jörðu eiga vafalaust eftir að hækka mjög
í verði og síðar að verða ófáanleg með öllu, þegar námurnar eru
tæmdar. Þá kemur að því, að grípa verður til nýrra aðferða til öfl-
unar orku, og þá vafalaust sumra, sem nú þykja harla ólíklegar.
Það verður vafalaust bráðlega eitt helzta áhyggjuefni mannkyns-
ins, hvernig aflað skuli orku til reksturs á vélum, til hitunar og til
ljósa. Enn sem komið er, þá eru það helzt eigendur olíufélaganna,
sem eru orðnir sér þessa meðvitandi. Þeir sjá nú þegar, að olíulind-
irnar verða alltaf vandfundnari og torunnari og sennilega bráðum
allar þurrausnar.
Bílstjóri í Reykjavík, sem keyrir á olíustöð árið 1952 og kaupir
benzín á bílinn sinn, spyr aðeins að því, hvað benzínið kostar, en
ekki um hitt, hversu miklar birgðir af olíu séu til í heiminum, eða
hvort nokkuð benzín muni fáanlegt árið 2052. Hann mundi senni-
lega verða talsvert hissa, er lionum væri tjáð, að birgðir þær af olíu,
sem vitað er um í jörðu, endast líklega ekki nema svona í 15 ár. Og
á meðan bílstjórinn tiltekur, hversu marga lítra af þessu einkar
hentuga eldsneyti, benzíninu, hann vill fá á geyminn í bílnum sín-
um, þá sitja nokkrir verkfræðingar og kaupsýslumenn á fundi í ein-
hverri fjarlægri borg og brjóta heilann um það, hvernig fullnægt
verði olíueftirspurninni í heiminum næstu áratugina. Þeir ráðgera
olíuleit á nýjum stöðum. Ef til vill í fjarlægum heimsálfum, langt
inni á eyðimörkum, inni í óbyggðum, úti á hafi eða handan við risa-
háa fjallgarða. Ef til vill verður yfir fen og í gegnum frumskósa að
sækja. þar sem allt morar í flugum, sem bera malaríu eða gulusótt.
Og svo getur þannig farið, að engin olían finnist. Verkfræðingarnir
og kaupsýslumennirnir hafa þungar áhyggjur. En bílstjórinn í